Hafnarstjórn, fundur 277
25. apríl 2022, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eva Dröfn Sævarsdóttir, varamaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 752 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar frá 25. apríl lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 331 liður 6
Til máls tók Jón Björn Hákonarson
Fundargerð hafnarstjórnar frá 25. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Viljayfirlýsing um samstarf - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2107010 Allur ferill málsins
Lagður fram samningur um aðstöðusköpun að Sævarenda 2 á Stöðvarfirði vegna uppbyggingar á þjónustumiðstöð við fiskeldisiðnaðinn á Íslandi. Bæjarráð samþykkti samninginn á fundi 25.apríl og vísaði honum til staðfestingar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir samninginn og felur hafnarstjóra vinnslu og undirritun hans.
-
2. Beiðni um nýja flotbryggju
Mál 2204049 Allur ferill málsins
Siglingaklúbbur Austurlands, sem er með aðstöðu á Eskifirði, óskar eftir að hafnarsjóður hlutist til um að sett verði upp flotbryggja og landgangur fyrir neðan klúbbhús klúbbsins. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið felur framkvæmdasviði að skoða mögulegar lausnir í málinu og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
3. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
Mál 2202086 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands frá 1.apríl lögð fram til kynningar.
-
4. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2022
Mál 2204084 Allur ferill málsins
Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands hf. var haldinn 25.4.2022. Hafnarstjóri og fjármálastjóri sóttu fundinn fyrir hönd hafnarsjóðs.
-
5. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Freyja
Mál 2204113 Allur ferill málsins
Erindi frá Thor Shipping dags. 16. apríl 2022 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Sergey Kurevlev, skipstjóra á Mv Freyja W. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.