Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 276

5. apríl 2022, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 330 liður 4

    Samþykkt var í upphafi fundar að fundargerð yrði tekin á dagskrá með afbrigðum.

    Enginn tók til máls

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 5.apríl samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Verkefni hafnarsjóðs

    Mál 1908100 Allur ferill málsins

    Vöktun Mjóeyrarhafnar, áframhaldandi umræða. Hafnarstjórn samþykkir útfærslur í nýrri umgjörð um vöktun á Mjóeyrarhöfn og felur starfsmönnum að vinna að endanlegum samningi og útfærslu og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.

  2. 2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2022

    Mál 2109073 Allur ferill málsins

    Gjaldtaka fyrir gámasvæði á Mjóeyrarhöfn rædd. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í breytingar á gjaldskrá er tengist geymslu gáma á Mjóeyrarhöfn. Verkefnastjóra hafna falið að leggja breytingu gjaldskrár fyrir að nýju.

  3. 3. Grænn orkugarður á Reyðarfirði

    Mál 2108124 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni Græns orkugarðs.

  4. 4. Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2022

    Mál 2203147 Allur ferill málsins

    Lagt fyrir bréf Sjávarútvegsskóla unga fólksins er varðar samstarf og kostnaðarþátttöku sumarið 2022. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Sjávarútvegsskóla unga fólksins líkt og síðustu ár.

  5. 5. Ósk Síldarvinnslunnar um löndunartengingu á Olíubryggju

    Mál 2203082 Allur ferill málsins

    Lögð fyrir umsókn Síldarvinnslunnar um löndunarlögn á olíubryggju við Fiskimjölsverksmiðju í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir umsóknina.

  6. 6. 740 Leiruvegur - Umsókn um lóð við smábátahöfn

    Mál 2202136 Allur ferill málsins

    Lóðarumsókn Nes7 ehf, dagsett 9. janúar 2022, þar sem sótt er um lóð innan við smábátahöfnina Norðfirði fyrir 559 m2 iðnaðarhús með 7-10 iðnaðarbilum. Umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestaði afgreiðslu og vísaði umsókninni til umsagnar hafnarstjórnar. Hafnarstjórn frestaði afgreiðslu á 275.fundi og fól hafnarstjóra að ræða við aðila. Málið nú lagt fram að nýju. Hafnarstjóri hefur rætt við umsækjanda þar sem núverandi lóð er ekki á skipulagi. Verið er að skoða aðra kosti og verður málið tekið fyrir að nýju.

  7. 7. 740 Naustahvammur 76 - Umsókn um lóð

    Mál 2203022 Allur ferill málsins

    Lóðarumsókn Nestaks ehf, dagsett 1. mars 2022, þar sem sótt er um norð-austanhorn lóðarinnar við Naustahvamm 76 fyrir 1.000 m2 iðnaðarhús með 10 iðnaðarbilum. Umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestaði afgreiðslu og vísaði umsókninni til umsagnar hafnarstjórnar. Hafnarstjórn frestaði afgreiðslu á 275.fundi og fól hafnarstjóra að ræða við aðila. Málið nú lagt fram að nýju. Hafnarstjóri hefur rætt við umsækjendur og eru þeir að skoða aðra lóð. Hafnarstjórn samþykkir að koma að smávægilegum breytingum á þeirri lóð, ef af verður.

  8. 8. Erindi vegna skemmda á húsi og bryggju við Egilsbraut 22, Nesk.

    Mál 2204019 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Kristni Hjartarsyni fyrir hönd Keppings ehf. vegna skemmda sem urðu á húseign og bryggju við Egilsbraut 22 í Neskaupstað í óveðri þann 4. janúar síðastliðinn. Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk í samræmi við reglur um styrki til viðhalds og endurgerðar gamalla bryggja. Framkvæmdasviði er falið að skoða möguleika í sjóvörnum á þessu svæði.

  9. 9. Svæðisskipulagsnefnd 2021

    Mál 2102084 Allur ferill málsins

    Kynning á svæðisskipulagi Austurlands. Eydís Ásbjörnsdóttir kynnti tillögu að svæðisskipulagi Austurlands. Tillagan og umhverfismatsskýrsla hennar hefur verið birt til kynningar og umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og á vef Austurbrúar og Fjarðabyggðar og verður aðgengileg þar til og með 21. apríl næstkomandi. Kynningin er á grundvelli 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 13. og 14. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.