Hafnarstjórn, fundur 275
15. mars 2022, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 746 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar frá 15. mars lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 329 liður 8
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 15. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni hafnarsjóðs
Mál 1908100 Allur ferill málsins
Vöktun Mjóeyrarhafnar, áframhaldandi umræða. Frekari upplýsingar lagðar fram á fundinum. Hafnarstjórn ræddi málið og felur starfsmönnum að vinna tillögu á grundvelli umræðna og leggja fyrir næsta fund.
-
2. Mál 59/2022 - Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003
Mál 2203083 Allur ferill málsins
Umsagnafrestur í máli nr. 59/2022, "Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003", hefur verið framlengdur og rennur út 21.03.2022. Verkefnastjóra hafna er falið að láta vinna umsögn og senda inn á samráðsgátt.
-
3. Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Mál 2108124 Allur ferill málsins
Farið yfir málefni Græns orkugarðs. Hafnarstjórn fór yfir stöðu málsins og samþykkir að World Hydrogen 2022 Summit Exhibition verði sótt.
-
4. Ósk Síldarvinnslunnar um löndunartengingu á Olíubryggju
Mál 2203082 Allur ferill málsins
Síldarvinnslan hefur óskað eftir afstöðu hafnarstjórnar til uppsetningar fyrirtækisins á löndunarbúnaði á Olíubryggjunni í Norðfjarðarhöfn. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið.
-
5. 740 Leiruvegur - Umsókn um lóð við smábátahöfn
Mál 2202136 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Nes7 ehf, dagsett 9. janúar 2022, þar sem sótt er um lóð innan við smábátahöfnina Norðfirði fyrir 559 m2 iðnaðarhús með 7-10 iðnaðarbilum. Umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og vísar umsókninni til umsagnar hafnarstjórnar.
Hafnarstjórn frestar afgreiðslu og felur hafnarstjóra að ræða við aðila.
-
6. 740 Naustahvammur 76 - Umsókn um lóð
Mál 2203022 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Nestaks ehf, dagsett 1. mars 2022, þar sem sótt er um norð-austanhorn lóðarinnar við Naustahvamm 76 fyrir 1.000 m2 iðnaðarhús með 10 iðnaðarbilum. Umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og vísar umsókninni til umsagnar hafnarstjórnar.
Hafnarstjórn frestar afgreiðslu og felur hafnarstjóra að ræða við aðila.
-
7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
Mál 2202086 Allur ferill málsins
Fundargerð 442.fundar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar
-
8. Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2021
Mál 2202184 Allur ferill málsins
Drög að ársreikningi Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar