Hafnarstjórn, fundur 274
22. febrúar 2022, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 744 liður 19
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. febrúar lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 328 liður 2
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni hafnarsjóðs
Mál 1908100 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu verkefna hafnarsjóðs. Hafnarstjórn ræddi stöðu verkefna og farið yfir framtíðaráform.
-
2. Hafnargjöld fyrir eldri borgara
Mál 2006145 Allur ferill málsins
Erindi Gunnars Geirs Kristjánssonar er varðar hafnargjöld eldri borgara í Fjarðabyggð. Málinu vísað til hafnarstjórnar. Öldungaráð vísar málinu til hafnarstjórnar með beiðni um að afstaða verði tekin til málsins. Hafnarstjórn hefur áður fjallað um erindi sem þetta og hefur ekki orðið við erindunum þar sem það fellur ekki undir reglur hafnarsjóðs.
-
3. Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2022
Mál 2202134 Allur ferill málsins
Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2022. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja hátíðina í ár eins og verið hefur.
-
4. Seatrade Cruise Global í Miami 2022
Mál 2202035 Allur ferill málsins
Lagður fram tölvupóstur frá Cruise Iceland þar sem kannaður er áhugi fyrir þátttöku á Seatrade Cruise Global sýningunni sem haldin verður í Miami 26.-28.apríl. Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt í sameiginlegum fulltrúa á vegum Íslandsstofu á sýningunni.
-
5. Sjávarútvegsfundur 2022
Mál 2201179 Allur ferill málsins
Sjávarútvegsfundur á vegum Stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga var haldinn í fjarfundi þriðjudaginn 22. febrúar 2022. Hafnarstjóri og verkefnastjóri hafna sóttu fundinn.
-
6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
Mál 2202086 Allur ferill málsins
Fundargerð Hafnasambands Íslands frá 21.janúar lögð fram til kynningar.