Hafnarstjórn, fundur 273
25. janúar 2022, kl. 16:00 til 17:45, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Björgvin V Guðmundsson, varamaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 741 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar frá 25.janúar lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 326 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 25. janúar samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Útflutningur Rotterdam
Mál 2102183 Allur ferill málsins
Martijn Coopman frá Rotterdamhöfn kom inn á fundinn og kynnti hugmyndir Rotterdamhafnar um aukið samstarf.
-
2. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lagt fram endurskoðað og yfirfarið tilboð MVA ehf. í byggingu Frystihúsbryggju á Eskifirði. Breyttar forsendur voru ræddar á fundinum. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við MVA ehf. sem var eini bjóðandi í verkið. Hafnarstjórn vísar málinu til bæjarráðs.
-
3. Dýpi við Löndunar- og Nótabryggju á Eskifirði
Mál 2201133 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Eskju varðandi dýpi við Löndunar- og Nótabryggju á Eskifirði. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að gera skoðun og dýptarmælingu við bryggjurnar og grípa til aðgerða í samræmi við það.
-
4. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021
Mál 2101212 Allur ferill málsins
Fundargerð 440. fundar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar
-
5. Verkefni menningarstofu 2021
Mál 2009060 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Menningarstofu Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir styrk vegna verkefna á vegum menningarstofu á árinu 2021. Hafnarstjórn samþykkir umbeðinn styrk.
-
6. Beiðni um styrk til endurbóta og stækkunar bryggju
Mál 2201011 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni frá Hildibrand SFL um styrk vegna fyrirhugaðra lagfæringa og stækkunar á bryggju við Beituskúrinn, Nesgötu 43, Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk í samræmi við reglur Fjarðabyggðarhafna um styrki til viðhalds og endurgerðar gamalla bryggja.