Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 741

31. janúar 2022, kl. 08:30 til 09:32, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 326 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi undir lið 2.3. í fundargerð bæjarráðs frá 31.janúar.

    Til máls tóku Sigurður Ólafsson og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 31. janúar, utan liðar 2.3., samþykkt með 9 atkvæðum.

    Fundarliður 2.3. samþykktur með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Dalborg, hönnun á viðbyggingu

    Mál 2002039 Allur ferill málsins

    Lagðar fram teikningar af viðbyggingu við Leikskólann Dalborg Eskifirði, þar sem gert er ráð fyrir útboði viðbyggingar sem yrði fullbúin að utan.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt breytt útboðsfyrirkomulag. Endanlegri ákvörðun um útboð er vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir breytt útboðsfyrirkomulag og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs áframhaldandi vinnslu málsins.

  2. 2. Jafnlaunakerfi

    Mál 1812054 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannauðsstjóra er varðar uppfærslur á Jafnlaunahandbók sveitarfélagsins. Bæjarráð staðfestir breytingar á handbókinni.

  3. 3. Útboð veitingareksturs skíðasvæðis

    Mál 2201180 Allur ferill málsins

    Lagður fram samningur um veitingasölu í skíðaskálanum í Oddsskarði.

    Veitingarekstur skíðasvæðisins í Oddsskarði var boðinn út í október.

    Ein umsókn barst um reksturinn og uppfyllti umsækjandi þau skilyrði sem sett voru fram í útboðinu. Unnið hefur verið að samningi við þjónustuaðilann og er hann lagður fram til samþykktar. Bæjarráð samþykkir samning um veitingasölu í skíðaskálanum í Oddsskarði.

  4. 4. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2021 til 2022

    Mál 2201057 Allur ferill málsins

    Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið veitti sveitarfélögum frest til 21.janúar til að senda ráðuneytinu tillögur um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta til byggðarlaga fiskveiðiárið 2021/2022. Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra. Fjarðabyggð hefur verið veittur aukinn frestur til 4. febrúar, til að skila inn tillögum til ráðuneytisins. Bæjarstjóra og atvinnu- og þróunarstjóra falið að funda með samningsaðilum og ganga frá reglu til ráðuneytisins að því loknu.

  5. 5. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lagt fram endurskoðað og yfirfarið tilboð MVA ehf. í byggingu Frystihúsbryggju á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkti á fundi 25.janúar, að ganga til samninga við MVA ehf. sem var eini bjóðandi í verkið. Hafnarstjórn vísar máli til bæjarráðs til staðfestingar. Bæjarráðs samþykkir að ganga til samninga á grundvelli fyrirliggjandi endurskoðaðs tilboðs og breytinga á tilhögun verksins. Bæjarráð felur sviðsstjóra og bæjarstjóra að annast frágang og undirritun samninga.

  6. 6. Flugfélag Austurlands

    Mál 2201178 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Flugfélagi Austurlands merkt trúnaðarmál. Bæjarstjóra falið að ræða við bréfritara og leggja málið fyrir bæjarráð að nýju.

  7. 7. Sjávarútvegsfundur 2022

    Mál 2201179 Allur ferill málsins

    Stjórn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga boðar til Sjávarútvegsfundar, þriðjudaginn 22. febrúar 2022, frá klukkan 13:00 til 15:00. Fundurinn verður haldinn sem fjarfundur.

  8. 8. Tillaga til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 12. mál.

    Mál 2201171 Allur ferill málsins

    Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 12. mál. Vísað til bæjarstjóra og forstöðumanns stjórnsýslu til skoðunar.

  9. 9. Hafnarstjórn - 273

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 25.janúar lögð fram til umfjöllunar.

    1. 9.1 Útflutningur Rotterdam2102183
    2. 9.2 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    3. 9.3 Dýpi við Löndunar- og Nótabryggju á Eskifirði2201133
    4. 9.4 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20212101212
    5. 9.5 Verkefni menningarstofu 20212009060
    6. 9.6 Beiðni um styrk til endurbóta og stækkunar bryggju2201011
  10. 10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 304

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, frá 24.janúar lögð fram til umfjöllunar.

    1. 10.1 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing2106148
    2. 10.2 Dýraeftirlit 20222201003
    3. 10.3 Lóðir til úthlutunar í Fjarðabyggð2102027
    4. 10.4 740 Sæbakki 19 og 21 - Umsókn um lóð2201099
    5. 10.5 735 Dalur við jarðgöng - umsókn um lóð2201124
    6. 10.6 730 Fagradalsá - Beiðni um framkvæmdaleyfi vegna malarvinnslu2201129
    7. 10.7 735 Eskifjarðará - Umsókn um framkvæmdaleyfi til að hækka vatnsborð2201136
    8. 10.8 735 Símonartún - Umsókn um stöðuleyfi, tveir 12 m gámar2201123
    9. 10.9 Dalborg, hönnun á viðbyggingu2002039
    10. 10.10 Svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði2006108