Bæjarráð, fundur 740
24. janúar 2022, kl. 08:30 til 10:15, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 326 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson og Eydís Ásbjörnsdóttir,
Fundargerð bæjarráðs frá 24. janúar samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Mál 2108124 Allur ferill málsins
Anna-Lena Jeppsson, verkefnisstjóri hjá CIP, sat þennan lið fundarins og fór yfir stöðu mála vegna vinnu við grænan orkugarð í Fjarðabyggð. Anna-Lena gerði m.a. grein fyrir nokkrum verkefnum sem eru í gangi víðsvegar um heiminn og tímalínu verkefnisins hér heima.
-
2. Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2104079 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál frá fjármálastjóra, yfirlit yfir rekstur og fjárfestingar Fjarðabyggðar fyrir janúar - nóvember auk yfirlits yfir launakostnað og skatttekjur fyrir janúar - desember.
-
3. Svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði
Mál 2006108 Allur ferill málsins
Magnús Jóhannesson hefur verið skipaður formaður svæðisráðs sem hefur það hlutverk að vinna að gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði sbr. lög um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018.
-
4. Starfshópur leikskólar 2021
Mál 2111127 Allur ferill málsins
Umræða í framhaldi af vinnu starfshóps sem bæjarráð skipaði 22. nóvember sl. um málefni leikskólanna í Fjarðabyggð. Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins. Tillögur verða lagðar fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
5. Kaup á slökkvibifreið
Mál 2201128 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað slökkviliðsstjóra er varðar útboð á vegum Ríkiskaupa vegna kaupa á slökkvibifreið. Bæjarráð felur slökkviliðsstjóra og fjármálastjóra að taka þátt í útboði og leggja niðurstöðu þess fyrir bæjarráð að nýju.
-
6. 181.mál - Frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnastig o.fl.) - beiðni um umsögn.
Mál 2201127 Allur ferill málsins
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnastig o.fl.), 181. mál. Ef senda á umsögn skal hún hafa borist undirrituð eigi síðar en í lok dags 3. febrúar nk. Vísað til bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra til skoðunar.
-
7. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022
Mál 2201106 Allur ferill málsins
Fundargerð sambandsins frá 14.janúar lögð fram til kynningar.
-
8. Snjómokstur í Neskaupstað
Mál 2201138 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Sveins Einarssonar eiganda og stjórnanda Haka ehf. er varðar snjómokstur í Neskaupstað. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.