NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 304
24. janúar 2022, kl. 16:00 til 16:50, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 741 liður 10
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, frá 24.janúar lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 326 liður 4
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. janúar samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing
Mál 2106148 Allur ferill málsins
Kynnt staða innleiðingar grænna skrefa en reiknað er með að innleiðing hefjist um miðjan febrúar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd stefnir á að hafa opinn íbúafund þar sem umhverfis- og loftlagsstefnan verður kynnt, farið yfir hringrásarhagkerfið, fyrirkomulag úrgangsmála hjá sveitarfélaginu og reynslu af nytjamörkuðum
Reiknað er með að fundurinn verði í lok febrúar ef sóttvarna aðstæður leyfa.
-
2. Dýraeftirlit 2022
Mál 2201003 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað umhverfisstýru er varðar fyrirhuguð hundahlýðninámskeið í Fjarðabyggð á árinu.
-
3. Lóðir til úthlutunar í Fjarðabyggð
Mál 2102027 Allur ferill málsins
Lagðar fram tillögur að lóðaskipulagi vegna þéttingar byggðar í Krossskálavík í Norðfirði milli Hafnarbrautar 34 og 48 og Miðgarðs 9 og 13.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd líst vel á framlagðar tillögur að afmörkun íbúðarhúsalóða á svæðinu og samþykkir að lóðum verði úthlutað í samræmi við þær.
-
4. 740 Sæbakki 19 og 21 - Umsókn um lóð
Mál 2201099 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Sigurðar Steins Einarssonar, dagsett 16. janúar 2022, þar sem sótt er um einbýlishúsalóðirnar við Sæbakka 19 og 21 undir fjögurra íbúða raðhús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu.
-
5. 735 Dalur við jarðgöng - umsókn um lóð
Mál 2201124 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Guðna Þórs Elissonar, dagsett 20. janúar 2022, þar sem sótt er um lóð undir geymsluhúsnæði á fyrirhuguðu athafnarsvæði innan við byggðina á Eskifirði og utan gangnamunna Norðfjarðarganga samkvæmt óstaðfestu aðalskipulagi. Umrætt svæði er ódeiliskipulagt.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu lóðarumsóknar. Nefndin felur sviðsstjóra- umhverfis- og skipulagssviðs að hefja undirbúning að gerð deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ákvæði aðalskipulags.
-
6. 730 Fagradalsá - Beiðni um framkvæmdaleyfi vegna malarvinnslu
Mál 2201129 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Sigurbjörns Marinóssonar um framkvæmdaleyfi, ásamt fylgigögnum, vegna fyrirhugaðrar 6.000 m3 efnistöku á um 6 ha svæði við Fagradalsá í Reyðarfirði. Leyfi Fiskistofu, til 20. janúar 2027 og umsögn Náttúrustofu Austurlands vegna efnistökunnar liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis.
-
7. 735 Eskifjarðará - Umsókn um framkvæmdaleyfi til að hækka vatnsborð
Mál 2201136 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi, ásamt fylgigögnum, vegna fyrirhugaðrar
lagfæringar á steinum sem raðað hefur verið í Eskifjarðará til að hækka vatnsborð á nærsvæði Vatnsveitu Fjarðabyggðar á Eskifirði. Leyfi Fiskistofu vegna lagfæringanna liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis.
-
8. 735 Símonartún - Umsókn um stöðuleyfi, tveir 12 m gámar
Mál 2201123 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Kristins Þórs Jónassonar fh. Sjósportsklúbb Austurlands og Bæjarhátíðarinnar Útsæðið, dagsett 18. janúar 2022 þar sem óskað er eftir heimild til að geyma tvo 12 m gáma á Símonartúni utan við þéttbýlið á Eskifirði. Samkvæmt óstaðfestu aðalskipulagi er gert ráð fyrir athafnarsvæði á svæðinu við Símonartún. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir hesthúsum og frístundabúskap á svæðinu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að fara yfir skipulagsskilmála svæðisins og mögulegan kostnað.
-
9. Dalborg, hönnun á viðbyggingu
Mál 2002039 Allur ferill málsins
Lagðar fram teikningar af viðbyggingu við leikskólann Dalborg þar sem gert er ráð fyrir útboði viðbyggingar fullbúinnar að utan.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytt útboðsfyrirkomulag. Endanlegri ákvörun um útboð er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
-
10. Svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði
Mál 2006108 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar skipunarbréf Magnúsar Jóhannessonar sem hefur verið skipaður formaður svæðisráðs sem hefur það hlutverk að vinna að gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði sbr. lög um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018.