735 Símonartún - Umsókn um stöðuleyfi, tveir 12 m gámar
Mál 2201123 Fyrst á dagskrá 24. janúar 2022, síðast 3. febrúar 2022. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 304 liður 8
Lögð fram beiðni Kristins Þórs Jónassonar fh. Sjósportsklúbb Austurlands og Bæjarhátíðarinnar Útsæðið, dagsett 18. janúar 2022 þar sem óskað er eftir heimild til að geyma tvo 12 m gáma á Símonartúni utan við þéttbýlið á Eskifirði. Samkvæmt óstaðfestu aðalskipulagi er gert ráð fyrir athafnarsvæði á svæðinu við Símonartún. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir hesthúsum og frístundabúskap á svæðinu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að fara yfir skipulagsskilmála svæðisins og mögulegan kostnað.
-
Bæjarráð, fundur 741 liður 10.8
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 304“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 326 liður 4.8
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 304“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.