Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 303

10. janúar 2022, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
  • Magnús Karl Ásmundsson, varamaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 739 liður 16

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 11.janúar lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 325 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 11.janúar samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Alcoa Foundation, umhverfisverkefni 2021-2025

    Mál 2104047 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dags. 3. janúar 2022, er varðar tillögu á skipulagi verkefnis er varðar lagfæringu vegslóða út með sunnan verðri Viðfjarðarströndinni.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkomnar tillögur og felur umhverfisstjóra að fylgja verkefninu eftir.

  2. 2. C.9 Byggðaáætlun

    Mál 1903034 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynnningar lokaskýrsla Náttúrustofu Austurlands á C9 verkefninu er varðar náttúruvernd og eflingu byggða.

  3. 3. Uppfærsla svæðisáætlana vegna lagabreytinga á úrgangsmálum

    Mál 2112017 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað verkefnastjóra úrgangsmála, dagsett 7. desember 2021, þar sem farið er yfir lagabreytingar um meðhöndlun úrgangs sem koma til framkvæmda næstu 2 árin.

  4. 4. Skilavegir - Ástandsmat

    Mál 2108085 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar samningur Fjarðabyggðar og Vegagerðarinnar um skilavegi í Fjarðabyggð. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur með tölvupóstsamskiptum á milli funda, samþykkt samninginn fyrir sitt leyti. Samningurinn var samþykktur í bæjarráði 22. desember síðastliðinn.

  5. 5. 740 Stekkjargata 5 - Umsókn um byggingaheimild, niðurrif

    Mál 2112114 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 22. desember 2021, þar sem sótt er um leyfi til að rífa húsnæði sveitarfélagsins að Stekkjargötu 5 á Norðfirði. Samkvæmt deiliskipulagi er um víkjandi byggingu að ræða en gert ráð fyrir allt að fjögurra íbúða fjölbýlishúsi á lóðinni.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir niðurrif.

  6. 6. 760 Sólheimar 9 - Umsókn um lóð

    Mál 2201067 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Sigrúnar Birgisdóttur, dagsett 9. janúar 2022, þar sem sótt er um lóðina við Sólheima 9 á Breiðdalsvík undir einbýlishús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  7. 7. 730 Nesbraut 6 - Umsókn um breytta legu lóðar

    Mál 2112066 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Ertingar Eignarhaldsfélags ehf, dagsett 13. desember 2021, þar sem óskað er eftir færslu lóðarmarka lóðar fyrirtækisins að Nesbraut 6 á Reyðarfirði um 23,7 m til vesturs. Lóð Nesbrautar 2-4 hliðrast samhliða. Samþykki lóðarhafa Nesbrautar 2-4 liggur fyrir. Lögð fram tillaga að breyttri legu lóðanna.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir færslu lóðarmarka.

  8. 8. 730 Nesbraut 2 - Umsókn um breytta legu lóðar

    Mál 2112065 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Ertingar Eignarhaldsfélags ehf, dagsett 13. desember 2021, þar sem óskað er eftir færslu lóðarmarka lóðar fyrirtækisins að Nesbraut 2-4 á Reyðarfirði um 23,7 m til austurs. Lóð Nesbrautar 6 hliðrast samhliða. Samþykki lóðarhafa Nesbrautar 6 liggur fyrir. Lögð fram tillaga að breyttri legu lóðanna.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir færslu lóðarmarka.

  9. 9. 730 Ægisgata 9 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2111144 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju umsókn Skútabergs ehf, dagsett 22. nóvember 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar fyrirtækisins að Ægisgötu 9 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frá síðustu endurnýjun lóðarleigusamnings, dagsett 5. febrúar 2016.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að samningur verður endurnýjaður. Nefndin felur jafnframt sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs ásamt bæjarstjóra að ganga frá samningi.

  10. 10. 730 Austurvegur 5 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2112046 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Gunnars Hreindal Pálssonar, dagsett 9. desember 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Austurvegi 5 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  11. 11. 750 Hafnargata 32-32 - Umsókn um færslu á læk

    Mál 2201061 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Loðnuvinnslunnar hf. um breytingu á læk sem rennur innan og við lóð fyrirtækisins að Hafnargötu 32-34 á Fáskrúðsfirði, dagsett 16. desember 2021. Laga þarf aðkomu að viðbyggingu norðan við húsið með lækkun lands. Til að koma í veg fyrir að lækur fari upp úr farvegi og inn á lóðina er óskað eftir heimild til að breyta og laga farveg.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytingu á læk.

  12. 12. 735 Bleiksá - Umsókn um stöðuleyfi, tveir 12 m gámar

    Mál 2112067 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Kristins Þórs Jónassonar fh. Sjósportsklúbb Austurlands og Bæjarhátíðarinnar Útsæðið, dagsett 13. desember 2021 þar sem óskað er eftir heimild til að hafa áfram tvo 12 m gáma við Bleiksá, þar sem geymslugámar voru áður.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á gámarnir verði geymdir áfram á svæðinu við Bleiksá. Hreinsun svæðisins hefur staðið yfir síðan auglýsing um það var birt í október 2021 og öllum þekktum eigendum sent bréf um að fjarlægja ætti alla gáma af svæðinu fyrir 22. nóvember 2021.

  13. 13. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2021

    Mál 2102187 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 165. fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 1. desember síðastliðnum.