730 Ægisgata 9 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2111144 Fyrst á dagskrá 6. desember 2021, síðast 20. janúar 2022. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Lóðir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 302 liður 4
Lögð fram umsókn Skútabergs ehf, dagsett 22. nóvember 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar fyrirtækisins að Ægisgötu 9 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frá síðustu endurnýjun lóðarleigusamnings, dagsett 5. febrúar 2016.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs ásamt bæjarstjóra að ræða við umsækjanda og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
Bæjarráð, fundur 736 liður 14.4
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 302“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 324 liður 3.4
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 302“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2022
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 303 liður 9
Lögð fram að nýju umsókn Skútabergs ehf, dagsett 22. nóvember 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar fyrirtækisins að Ægisgötu 9 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frá síðustu endurnýjun lóðarleigusamnings, dagsett 5. febrúar 2016.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að samningur verður endurnýjaður. Nefndin felur jafnframt sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs ásamt bæjarstjóra að ganga frá samningi.
-
Bæjarráð, fundur 739 liður 16.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 303“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 325 liður 4.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 303“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.