Bæjarstjórn, fundur 324
16. desember 2021, kl. 16:00 til 17:40, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Sigurður Ólafsson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, varamaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Bæjarráð - 735
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:02:48
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Einar Már Sigurðsson, Pálína Margeirsdóttir, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð bæjarráðs frá 6. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Brunavarnir í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar21111400:12:08
- 1.2 Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - endurskoðun 2021 - Nýjar leiðbeiningar og fyrirmyndir að samþykkt um stjórn sveitarfélaga í október 20212110020
- 1.3 Lántaka á árinu 202121021190:03:16
- 1.4 Minnisblað sambandsins um endurskoðaða þjóðhagsspá2112023
- 1.5 Krafa vegna fasteignanna að Mánagötu 3 og 7 Reyðarfirði2106098
- 1.6 Vatnstjón á Eyrarstíg 11801118
- 1.7 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 20212111170
- 1.8 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20212102016
- 1.9 Hluthafafundur Raflagna Austurlands2112022
- 1.10 Barnaverndarnefnd 20212101080
-
2. Bæjarráð - 736
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:04:12
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Fjárhagsáætlun 2021 - viðauki 221120390:04:12
- 2.2 Lántaka á árinu 202121021190:20:32
- 2.3 Málefni brothættra byggða2103191
- 2.4 Endurnýjun á samningi við N4 vegna þáttagerðar 20222112047
- 2.5 Reglur um leikskóla2110048
- 2.6 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja202221110760:05:36
- 2.7 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja202221110760:17:16
- 2.8 Samþykkt um hunda- og kattahald - endurskoðun 20212110088
- 2.9 Covid 19 - aðgerðir vegna smita í Fjarðabyggð og á Austurlandi2008011
- 2.10 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 20212111170
- 2.11 730 Stekkjarholt 19-21 - Umsókn um lóð2112001
- 2.12 Sumarlokun leikskóla 20222110165
- 2.13 Fræðslunefnd - 1052112004F
- 2.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 3022112002F
- 2.15 Hafnarstjórn - 2712112003F
- 2.16 Íþrótta- og tómstundanefnd - 942111009F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 302
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:43:52
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 730 Stekkjartún 1 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús2110047
- 3.2 740 Naustahvammur 67 - Umsókn um byggingarleyfi byggja við löndunarhús, seinni hluti2111128
- 3.3 730 Stekkjarholt 19-21 - Umsókn um lóð2112001
- 3.4 730 Ægisgata 9 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2111144
- 3.5 730 Heiðarvegur 18 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2110045
- 3.6 Umsókn um framkvæmdaleyfi - sjóvarnir í Norðfirði og Eskifirði2110110
- 3.7 730 Stekkjargrund - Fyrirspurn um fjölgun íbúða2112024
- 3.8 750 Skólavegur 57 - Fyrirspurn um breytta notkun2112025
- 3.9 Krafa um skaðabætur vegna fasteignanna að Mánagötu 3 og 7 Reyðarfirði2106098
-
4. Hafnarstjórn - 271
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:44:20
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20212005026
- 4.2 Endurbygging/endurnýjun stálþilja vegna tæringar1710016
- 4.3 Hafnarsvæði við Landanaust2111129
- 4.4 Þróun hafnarsvæða2108027
- 4.5 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica2112004
- 4.6 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 20212111180
-
5. Fræðslunefnd - 105
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:44:48
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 8. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-20222110117
- 5.2 Reglur um leikskóla2110048
- 5.3 Sumarlokun leikskóla 20222110165
-
6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 94
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 29. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Styrkur í sund og líkamsrækt fyrir ungt fólk með krabbamein
- 6.2 Innleiðing laga um farsæld barna í Fjarðabyggð
- 6.3 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022
- 6.4 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022
- 6.5 UÍA beiðni um styrk á árinu 2022
-
7. Barnaverndarnefnd 2021
Mál 2101080 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:45:44
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 134 frá 2. desember staðfest með 9 atkvæðum.
-
8. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 43
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:46:12
Fundargerð tekin á dagskrá með afbrigðum.
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.
- 8.1 Styrkveitingar menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar2110098
- 8.2 Samantekt yfir verkefni Menningarstofu Fjarðabyggðar/Tónlistarmiðstöðvar 20212112029
- 8.3 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 20222112033
- 8.4 Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 20222108149
- 8.5 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing2106148
- 8.6 Menningarstyrkir 20212101186
- 8.7 Erindisbréf starfshóps um framtíðarsýn Stríðsárasafns2111093
- 8.8 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 20212111170
-
9. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - endurskoðun 2021, fyrri umræða
Mál 2110020 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:46:40
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á samþykkt sveitarfélagsins við fyrri umræðu.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á samþykkt Fjarðabyggðar um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Heimir Snær Gylfason, Einar Már Sigurðarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa samþykktinni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
10. Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2020-2040, síðari umræða
Mál 1810136 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:53:40
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðu aðalskipulagi Fjarðabyggðar við síðari umræðu.
Vísað til síðari umræðu aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 til 2040.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum aðalskipulag Fjarðabyggðar 2020-2040.
-
11. Fjárhagsáætlun 2021 - viðauki 2
Mál 2112039 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:07:12
Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka nr. 2
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka nr. 2 við fjárhagáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2021.
Viðauki 2 við fjárhagsáætlun ársins 2021 felur í sér breytingar á áætlunum vegna sölu eigna á Breiðdalsvík, í Neskaupstað, á Eskifirði, á Reyðarfirði og Stöðvarfirði, kaupum á hlutafé, framkvæmdum Fjarðabyggðahafna, framlags til Sköpunarmiðstöðvar, leiðrétting áætlunar félagsþjónustu, uppgjörs vatnstjóns, uppgjörs vegna hjúkrunarheimila, skiptingu potta til námstyrkja og símenntunar.
120 m.kr. lækkun eigna félagslegra íbúða vegna sölu eigna, söluhagnaður nemi um 154 m.kr. og skuldir lækki um 185 m.kr. Viðskiptastaða félagslegra íbúða hækkar um 110 m.kr. Viðskiptakröfur, sjóður og eigið fé aðalsjóðs breytist samsvarandi.
62,4 m.kr. er bætt við hlutabréfakaup í aðalsjóði vegna kaupa hluta í Bríet leigufélagi. Sjóður og eigið fé aðalssjóðs og samstæðu lækkar samsvarandi.
118 m.kr. er bætt við fjárfestingar Fjarðabyggðahafna vegna tilfærslu framkvæmda. Viðskiptastaða Fjarðabyggðahafna mun lækka sem nemur 118 m.kr. Viðskiptakröfur, sjóður og eigið fé aðalsjóðs breytist samsvarandi.
10 m.kr er bætt við framlög í menningarmálum vegna Sköpunarmiðstöðvar. Sjóður og eigið fé aðalsjóðs og samstæðu lækkar samsvarandi.
12 m.kr. verð bætt við launalið félagsþjónustu vegna leiðréttingar. Sjóður og eigið fé aðalsjóðs og samstæðu breytist samsvarandi.
109. m.kr. verði bætt við framlög félagsþjónustu vegna yfirtöku Heilbrigðisstofnunar á hjúkrunarheimilum. Sjóður og eigið fé aðalsjóðs og samstæðu breytist samsvarandi.
4,5 m.kr. verði bætt við óviss útgjöld í sameiginlegum kostnaði vegna uppgjörs vatnstjóns. Sjóður og eigið fé aðalsjóðs og samstæðu breytist samsvarandi.
2,7 m.kr. er úthluta af liðnum starfsmannakostnaður til deilda aðalsjóðs vegna námsstyrkja starfsmanna. Ráðstöfun hefur ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.
3,7 m.kr. er úthluta af liðnum starfsmannakostnaður til deilda aðalsjóðs vegna endurmenntunar starfsmanna. Ráðstöfun hefur ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.
Samandregnar breytingar eru að rekstrarniðurstaða í A hluta lækkar um 113 m.kr. Rekstrarniðurstaða í B hluta hækkar um 147 m.kr. Fjárfestingar í A hluta hækka um 62,4 m.kr. og í B hluta um 118 m.kr. Langtímaskuldir í B hluta lækka um 207 m.kr. Eigið fé einstakra stofnana og viðskiptareikningar þeirra við aðalsjóð breytast til samræmis. Sjóðsstaða í lok árs verður 39 m.kr.
Til máls tóku: Heimir Snær Gylfason, Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2021.
-
12. Lántaka á árinu 2021
Mál 2102119 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:27:44
Bæjarstjóri mælti fyrir lántöku.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögum um 100 milljóna. kr. lántöku hjá Íslandsbanka á óverðtryggðum kjörum til allt að 15 ára til samræmis við lántökuheimild í fjárhagsáætlun ársins 2021. Lagður fram lánasamningur/skuldabréf við Íslandsbanka að fjárhæð 100 milljónir króna. Skuldabréfið er óverðtryggt til 15 ára, með jöfnum afborgunum, 4,65% breytilegum vöxtum og er uppgreiðanlegt á lánstímanum.
Enginn tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi skuldabréf við Íslandsbanka að höfuðstól kr. 100.000.000, til allt að 15 ára, í samræmi við skilmála skuldabréfsins sem liggur fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er með jöfnum afborgunum. óverðtryggt og á breytilegum vöxtum. Er lánið tekið til að fjármagna fjárfestingu ársins að hluta. Jafnframt er Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 270173-3149, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns. Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði gegn lántöku og Heimir Snær Gylfason situr hjá.
-
13. Reglur um leikskóla
Mál 2110048 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:31:00
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum reglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar endurskoðuðum reglum um leikskóla.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum uppfærðar reglur um leikskóla.
-
14. Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk
Mál 2111076 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:32:52
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar reglum um íþrótta- og frístundastyrk Fjarðabyggðar til barna.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum reglur um íþrótta- og tómstundastyrk til barna.
-
15. Reglur Fjarðabyggðar úthlutun íþróttastyrkja til félaga
Mál 2111076 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:34:16
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir úthlutunarreglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðum úthlutunarreglum íþróttastyrkja Fjarðabyggðar til félaga.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum úthlutunarreglur íþróttastyrkja til félaga.
-
16. Samþykkt um hunda- og kattahald - endurskoðun 2021, fyrri umræða
Mál 2110088 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:35:12
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á samþykkt við fyrri umræðu.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald. Umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands liggur fyrir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að vísa samþykktinni til síðari umræðu.
-
17. Breyting á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga, fyrri umræða
Mál 2111170 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:36:36
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum stofnsamningi við fyrri umræðu.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga en breytingar lúta aðallega á ályktunarhæfi stjórnar og aðalfundar ásamt skoðunarmönnum.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að vísa stofnsamningi til síðari umræðu.
-
18. Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2022
Mál 2109088 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:38:00
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á gjaldskrá um fráveitu.
Lögð er fram tillaga um breytingu á 1.gr. gjaldskrá fyrir fráveitu. Setningin verði eftirfarandi: "Álagningarstuðull fyrir fráveitugjald er 0,275% af húsmati fasteigna. Fráveitugjald er innheimt bæði af húsmati heimila og fyrirtækja. Fráveitugjald er innheimt með fasteignagjöldum." Niður falli núverandi texti greinarinnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum breytingar á gjaldskrá fráveitu.