Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 271

7. desember 2021, kl. 17:00 til 18:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 736 liður 15

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. desember lögð fram til staðfestingar.

  • Bæjarstjórn, fundur 324 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021

    Mál 2005026 Allur ferill málsins

    Á 269.fundi hafnarstjórnar var verkefnastjóra hafna og fjármálastjóra falið að vinna viðauka fyrir framkvæmdir á árinu 2021. Lögð fram gögn vegna viðauka. Hafnarstjórn fór yfir viðauka þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmdir sem samþykkt var að fara í á árinu umfram fjárhagsáætlun. Hafnarstjórn samþykkir viðauka og vísar honum til bæjarráðs.

  2. 2. Endurbygging/endurnýjun stálþilja vegna tæringar

    Mál 1710016 Allur ferill málsins

    Minnisblöð Portum verkfræðistofu ehf. um tillögu að breytingu hafnarinnar á Eskifirði lögð fram til kynningar. Hafnarstjórn kynnti sér tillögurnar og mun taka þær fyrir aftur þegar nær dregur verktíma.

  3. 3. Hafnarsvæði við Landanaust

    Mál 2111129 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað Portum verkfræðistofu ehf. um hafnarsvæði við Landanaust á Norðfirði. Hafnarstjórn fór yfir tillögur og vísar þeim til frekari skoðunar hjá sviðsstjóra framkvæmdasviðs og hafnarstjóra.

  4. 4. Þróun hafnarsvæða

    Mál 2108027 Allur ferill málsins

    Þróun hafnarsvæða Fjarðabyggðarhafna. Trúnaðarmál. Hafnarstjórn ræddi málið og vísar því til frekari vinnslu verkefnastjóra hafna.

  5. 5. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica

    Mál 2112004 Allur ferill málsins

    Erindi frá Royal Arctic Line dags. 30. nóvember 2021 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Thorkil Clausen Riis, skipstjóra á Tukuma Arctica. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.

  6. 6. Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2021

    Mál 2111180 Allur ferill málsins

    Sérstakt strandveiðigjald til hafna lagt fram til kynningar