Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 270

22. nóvember 2021, kl. 16:30 til 18:45, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 323 liður 3

    Fundargerð tekin á dagskrá með afbrigðum.

    Til máls tók Sigurður Ólafsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stjórnkerfisnefnd

    Mál 2011203 Allur ferill málsins

    Tillaga stjórnkerfisnefndar að breyttu vinnufyrirkomulagi á höfnum lögð fram til samþykktar.

    Hafnarstjórn samþykkir tillögu stjórnkerfisnefndar.

  2. 2. Tillaga að starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. Stöðvarfirði - 7.000 tonna sjókvíaeldi á ófrjóum laxi

    Mál 2111116 Allur ferill málsins

    Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Fiskeldi Austfjarða hf. í Stöðvarfirði. Um er að ræða sjókvíaeldi á ófrjóum laxi með allt að 7.000 tonna lífmassa á hverjum tíma. Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 25. nóvember 2021.

    Hafnarstjórn tekur undir bókun bæjarráðs frá 22. nóvember 2021.

  3. 3. Tillaga að rekstrarleyfi Fiskeldis Austfjarða til fiskeldis í Stöðvarfirði

    Mál 2111117 Allur ferill málsins

    Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Fiskeldi Austfjarða hf. til sjókvíaeldis á ófrjóum laxi í Stöðvarfirði. Tillagan er byggð á matsskýrslu frá 2020 um eldi á 7.000 tonnum af laxi í Stöðvarfirði.

    Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 24. nóvember 2021.

    Hafnarstjórn tekur undir bókun bæjarráðs frá 22. nóvember 2021.

  4. 4. Kaup á munum fyrir Íslenska stríðsárasafnið

    Mál 2110109 Allur ferill málsins

    Kaup á munum fyrir Íslenska Stríðsárasafnið á Reyðarfirði. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Íslenska Stríðsárasafnið á Reyðarfirði um kaup á munum.

  5. 5. Aðild Fjarðabyggðarhafna að Cruise Europe

    Mál 2101182 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkti á 262.fundi sínum að segja upp aðild að Cruise Europe. Aðild skal segja upp fyrir 15. desember fyrir árið á eftir og er málið lagt fyrir aftur til umræðu í stærra samhengi. Hafnarstjórn samþykkir að aðild að Cruise Europe verði ekki sagt upp fyrir árið 2022. Einnig felur hafnarstjórn atvinnu- og þróunarstjóra í samvinnu við verkefnastjóra hafna að ræða við aðrar nefndir og hagaðila um málið með stefnumótun í huga.

  6. 6. Umsókn - Eldsneytistankur og bátadæla, Norðfjarðarhöfn

    Mál 2111106 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Ferils ehf., verkfræðistofu, f.h. Skeljungs um leyfi fyrir eldsneytistanki og bátadælu á Norðfjarðarhöfn. Hafnarstjórn tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að ræða við Heilbrigiseftirlit Austurlands um staðsetningu og stærðir og vera í samskiptum við Feril ehf. í kjölfarið.

  7. 7. Drög að lokaskýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa

    Mál 2111035 Allur ferill málsins

    Lögð fram sem trúnaðarmál til kynningar drög að skýrslu Rannsóknarefndar samgönguslysa. Óskað er umsagnar fyrir 10. desember 2021.

  8. 8. Endurnýjun dráttarbáts - Undirbúningsvinna

    Mál 1911119 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá umboðsaðila Damen á Íslandi um nýjungar í dráttarbátum. Um er að ræða framtíðarverkefni Fjarðabyggðarhafna og er verkefnastjóra hafna falið að afla frekari upplýsinga og leggja fyrir að nýju.

  9. 9. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Útboð hefur verið auglýst í byggingu Frystihúsbryggju á Eskifirði. Útboði lýkur miðvikudaginn 8. desember 2021 kl. 14:00.

  10. 10. Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar

    Mál 2010159 Allur ferill málsins

    Lögð fram minnisblöð Portum verkfræðistofu ehf. með tillögum að stækkun Mjóeyrarhafnar og breytingu á deiliskipulagi. Hafnarstjórn samþykkir að fara í breytingu á deiliskipulagi og vísar málinu til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  11. 11. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021

    Mál 2101212 Allur ferill málsins

    Fundargerðir 438. og 439. funda stjórnar Hafnasambands Íslands lagðar fram til kynningar.