Hafnarstjórn, fundur 269
22. október 2021, kl. 12:00 til 13:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Heimir Snær Gylfason, varamaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 731 liður 36
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22.október lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 321 liður 5
Enginn tók til mál.s
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
Mál 2104136 Allur ferill málsins
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022 lögð fyrir til endanlegrar afgreiðslu. Hafnarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun 2022 og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs. Jafnframt óskar hafnarstjórn eftir því við verkefnastjóra hafna og fjármálastjóra að unninn verði viðauki fyrir framkvæmdir á árinu 2021.
-
2. Breyting á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði
Mál 2110104 Allur ferill málsins
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Fjarðabyggðar vegna tilkynningar Laxa Fiskeldis ehf. um breytingu á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði. Umsögn skal skilað fyrir 12.nóvember. Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna umsögn í samráði við hafnarstjóra sem og aðra starfsmenn í samræmi við umræður á fundinum.
-
3. Beiðni um styrk til endurgerðar á bryggju
Mál 2109185 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni frá Agli Helga Árnasyni um styrk til endurgerðar á bryggju við sjóhús að Strandgötu 98a á Eskifirði. Á 267. fundi hafnarstjórnar var hafnarstjóra falið að ræða við styrkbeiðanda og leggja fyrir að nýju. Hafnarstjórn finnst framtakið gott en því miður fellur það ekki undir reglur um styrki til viðhalds og endurgerðar gamalla bryggja. Hafnarstjóra er falið að ræða málið við umsækjanda og ganga frá því.