Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 268

13. október 2021, kl. 16:00 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 730 liður 21

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 13.október lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 320 liður 5

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 13. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing

    Mál 2106148 Allur ferill málsins

    Vísað til umsagnar frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 25. ágúst 2021, vegna innleiðingar umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar 2020-2040. Í minnisblaði er farið yfir innleiðingu stefnunnar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að innleiðing verði kynnt í öllum fastanefndum þar sem tilnefndir verða aðilar til að mynda starfshóp um innleiðingu í samræmi við minnisblað.

    Hafnarstjórn tilnefnir formann hafnarstjórnar og verkefnastjóra hafna sem fulltrúa hafnarstjórnar í starfshópi.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022

    Mál 2104136 Allur ferill málsins

    Drög að starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022 lögð fram. Farið yfir drögin og vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.

  3. 3. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2022

    Mál 2109073 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2022 lögð fram til samþykkis. Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá samkvæmt umræðum á fundi og vísar henni til bæjarráðs.

  4. 4. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lögð fram uppfærð kostnaðaráætlun vegna jarðvinnu, burðarvirkis, lagna og frágangs Frystihúsbryggju á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir uppfærða kostnaðaráætlun og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að undirbúa og hefja útboðsferli.

  5. 5. Útflutningur Rotterdam

    Mál 2102183 Allur ferill málsins

    Drög af viljayfirlýsingu milli Fjarðabyggðar og Rotterdamhafna lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir framlögð drög af viljayfirlýsingu og felur hafnarstjóra að undirrita hana.

  6. 6. Umsókn um styrk vegna Okkur að góðu

    Mál 2109247 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Austurbrúar ses. um styrk vegna verkefnisins Okkur að góðu. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.

  7. 7. Sjávarútvegsráðstefnan 2021

    Mál 2012142 Allur ferill málsins

    Sjávarútvegsráðstefnan 2021 verður haldin í Hörpu, dagana 11.-12. nóvember, en ráðstefnunni var frestað árið 2020. Skráning á ráðstefnuna hófst 8.október. Hafnarstjórn samþykkir að sækja ráðstefnuna ásamt starfsmönnum.

  8. 8. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021

    Mál 2101212 Allur ferill málsins

    Fundargerð 437. fundar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar.

  9. 9. Umsókn um svæði til æfinga

    Mál 2110099 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn frá Slökkviliði Fjarðabyggðar um svæði til æfinga á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að útfæra það í samráði við slökkviliðsstjóra.