Hafnarstjórn, fundur 272
21. desember 2021, kl. 16:00 til 16:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 737 liður 6
Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. desember lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 325 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 21.desember, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Miðvikudaginn 8.desember voru opnuð tilboð í byggingu Frystihúsbryggju á Eskifirði. Eitt tilboð barst í verkið frá MVA ehf. sem var 163% af kostnaðaráætlun. Hafnarstjórn hafnar tilboðinu og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að yfirfara kostnaðaráætlunina og tilboðið, leita samninga við MVA ehf og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju. Vísað til staðfestingar bæjarráðs.
-
2. Breyting á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði
Mál 2110104 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að svari hafnarstjórnar Fjarðabyggðar við viðbótarumsögn Vegagerðarinnar vegna tilkynningar um framkvæmd breytingar á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði.
Hafnarstjórn samþykkir drög að svari og felur atvinnu- og þróunarstjóra að svara Vegagerðinni í samræmi við umræður á fundinum.
-
3. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica
Mál 2112068 Allur ferill málsins
Erindi frá Royal Arctic Line dags. 7. desember 2021 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Jacob Meyer Skou, skipstjóra á Tukuma Arctica.
Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðna undanþágu.
-
4. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju
Mál 2112103 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar