Bæjarráð, fundur 737
22. desember 2021, kl. 12:00 til 12:35, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 325 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð bæjarráðs frá 22.desember samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2104079 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit yfir rekstur og fjárfestingar Fjarðabyggðar fyrir janúar - október sem trúnaðarmál auk yfirlits yfir launakostnað og skatttekjur fyrir janúar - nóvember.
-
2. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Vísað frá hafnarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs niðurstöðum útboðs frá 8. desember í byggingu Frystihúsbryggju á Eskifirði. Eitt tilboð barst í verkið frá MVA ehf sem var 163% af kostnaðaráætlun. Hafnarstjórn hafnar tilboðinu og felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að yfirfara kostnaðaráætlunina og tilboðið og leita samninga við MVA ehf og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
Bæjarráð staðfestir niðurstöðu hafnarstjórnar.
-
3. Barnaverndarlög og barnaverndarþjónusta 2022
Mál 2110125 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs vegna breytinga á barnaverndarlögum. Sviðstjóri leggur annars vegar til að Fjarðabyggð sæki um undanþágu frá því ákvæði að umdæmi hverrar barnaverndarþjónustu skulu vera í það minnsta 6.000 íbúar og hins vegar að Fjarðabyggð leita samstarfs um skipun umdæmisráð með Múlaþingi og eftir atvikum fleiri sveitarfélögum.
Bæjarráð samþykkir tillögur sviðsstjóra.
-
3. Skilavegir - samningur
Mál 2108085 Allur ferill málsins
Framlögð drög samnings við Vegagerð um uppgjör á skilavegum.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
4. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021
Mál 2102016 Allur ferill málsins
Fundargerð 904. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar
-
6. Hafnarstjórn - 272
Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. desember lögð fram til afgreiðslu