Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 738

3. janúar 2022, kl. 08:30 til 10:35, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 325 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson og Magni Þór Harðarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 3.janúar samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

    Mál 2012117 Allur ferill málsins

    Farið yfir og rætt um áhrif nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

  2. 2. Starfshópur leikskólar 2021

    Mál 2111127 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað starfshóps sem bæjarráð skipaði 22. nóvember sl. um málefni leikskólanna í Fjarðabyggð.

    Vísað til bæjarstjóra til skoðunar. Málið lagt fram að nýju í bæjarráði.

  3. 3. Frágangur vegna félagslegra leiguíbúða í Breiðdal

    Mál 2112123 Allur ferill málsins

    Framlögð til staðfestingar yfirlýsing milli Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Fjarðabyggðar vegna uppgjörs skuldbindinga vegna félagslegs leiguhúsæðis í Breiðdal.

    Bæjarráð samþykkir uppgjör skuldbindinganna.

  4. 4. Úthlutun stofnframlaga ríkisins 2021

    Mál 2112130 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar samþykki Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um úthlutun stofnframlags ríkis auk byggðaframlags til Fjarðabyggðar f.h. óstofnaðs hses. félags. Framlagið er til byggingar á fimm íbúðum á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt fjármálastjóra að vinna málið áfram.

  5. 5. Málefni brothættra byggða

    Mál 2103191 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um fyrirkomulag verkefnisins um brothættar byggðir - Stöðvarfjörður og aukið hlutfall stöðu verkefnastjóra í verkefninu.

    Bæjarráð samþykkir að leggja verkefninu brothættar byggðir til aukið hlutfall til að fylgja m.a. eftir fyrra verkefni sem var unnið í Breiðdal ásamt því að styðja frekar við verkefnið á Stöðvarfirði. Bæjarstjóra falið að útfæra og ganga frá samningi við Austurbrú um aukið hlutfall. Kostnaði vísað til gerðar viðauka.

  6. 6. Samningur um sölu íbúða að Dalbarði, Hlíðarbrekku og Nesbakka

    Mál 2112106 Allur ferill málsins

    Stjórn Leigufélagsins Bríetar hefur samþykkt að ganga til viðræðna um kaup á 4 íbúðum að Dalbarði á Eskifirði, 2 íbúðum að Hlíðarbrekku á Fáskrúðsfirði og 2 íbúða í Neskaupstað á sambærilegum skilmálum og við kaup á íbúðum að Réttarholti og Leynimel.

    Bæjarráð samþykkir að íbúðir séu lagðar inn í Bríet leigufélag. Bæjarstjóra falið að undirrita skjöl og ganga frá samkomulagi þar um.

  7. 7. Nefndaskipan Miðflokksins

    Mál 1909045 Allur ferill málsins

    Framlögð tilkynning frá Miðflokki um breytta skipan íþrótta- og tómstundanefndar þar sem Hörður Sigmundsson tekur sæti varamanns áheyrnarfulltrúa í nefndinni í stað Einars Birgis Kristjánssonar. Einar Birgir tekur sæti Guðrúnar Stefánsdóttur sem áheyrnarfulltrúa í nefndinni en hún hefur flutt búferlum úr sveitarfélaginu.

  8. 8. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2021

    Mál 2112125 Allur ferill málsins

    Framlög fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands vegna aðalfundar 2021.

  9. 9. Íþrótta- og tómstundanefnd - 95

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. desember lögð fram til staðfestingar.

    1. 9.1 Ferðaþjónusta og skíðasvæði
    2. 9.2 íþróttamaður Fjarðabyggðar 2022