Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 736

13. desember 2021, kl. 08:30 til 10:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 324 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2021 - viðauki 2

    Mál 2112039 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 2 við fjárhagáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2021.

    Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 2 og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar og til fjármálastjóra að ljúka uppsetningu hans.

  2. 2. Lántaka á árinu 2021

    Mál 2102119 Allur ferill málsins

    Lagt er til að nýta lántökuheimild í fjárhagsáætlun ársins 2021 að fjárhæð um 100 m.kr. Lagt er til að óska eftir láni frá Íslandsbanka á óverðtryggðum kjörum til allt að 15 ára.

    Bæjarráð samþykkir lántökuna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar ásamt því að bæjarstjóra er falið að undirrita lánaskjöl sem tengjast lántökunni. Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði gegn lántökunni.

  3. 3. Málefni brothættra byggða

    Mál 2103191 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um fyrirkomulag verkefnisins um brothættar byggðir -Stöðvarfjörður og aukið hlutfall stöðu verkefnastjóra í verkefninu.

    Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram með Byggðastofnun og leggja fyrir að nýju í bæjarráði.

  4. 4. Endurnýjun á samningi við N4 vegna þáttagerðar 2022

    Mál 2112047 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnsiblað upplýsingafulltrúa vegna beiðnar frá N4 um áframhaldandi samning vegna þáttagerðar í sjónvarpi.

    Bæjarráð samþykkir samning um þátttöku í þáttagerð og felur bæjarstjóra undirritun samnings.

  5. 5. Reglur um leikskóla

    Mál 2110048 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breytingum á reglum um leikskóla. Lagt er til að í reglunum verði kveðið á um að skólaár leikskóla sé skilgreint frá 1. ágúst til 31. júlí og börnum í elsta árgangi verði boðið upp á sumarfrístund í ágúst. Tillaga að breytingu á reglunum sem vörðuðu afslátt af leikskólagjöldum er vísað til samráðshóps um málefni leikskóla.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  6. 6. Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022

    Mál 2111076 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd, til samþykktar í bæjarráði, drögum að reglum um íþrótta- og tómstundastyrk Fjarðabyggðar til barna. Árið 2022 verður fyrsta árið sem slíkur styrkur verður veittur í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  7. 7. Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022

    Mál 2111076 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd, til samþykktar í bæjarráði, reglum um úthlutun íþrótta- og tómstundastyrkja Fjarðabyggðar til félaga. Helstu breytingar á úthlutunarreglunum er áhersla á skiptingu eftir iðkendum í starfi félaganna, en ekki fjölda grunnskólabarna í hverjum kjarna.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingu bæjarstjórnar.

  8. 8. Samþykkt um hunda- og kattahald - endurskoðun 2021

    Mál 2110088 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs breytingum á samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald. Umsögn Heilbrigðisnefndar liggur fyrir.

    Bæjarráð samþykkir samþykktina fyrir sitt leyti og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  9. 9. Covid 19 - aðgerðir vegna smita í Fjarðabyggð og á Austurlandi

    Mál 2008011 Allur ferill málsins

    Rætt um stöðu mála og ráðstafanir í skólum vegna Covid 19 smita.

  10. 10. Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021

    Mál 2111170 Allur ferill málsins

    Lagður fram til afgreiðslu uppfærður stofnsamningur Héraðsskjalasafns Austfirðinga en breytingar á samningnum voru samþykktar á aðalfundi safnsins 10. desember sl.

    Bæjarráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  11. 11. 730 Stekkjarholt 19-21 - Umsókn um lóð

    Mál 2112001 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Ingvars Guðmundssonar þar sem sótt er um lóðina við Stekkjarholt 19-21 á Reyðarfirði undir parhús.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar.

  12. 12. Sumarlokun leikskóla 2022

    Mál 2110165 Allur ferill málsins

    Endurskoðaðar tillögur um sumarlokun leikskóla 2022 lagðar fram að nýju. Gert ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum og er það í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum og niðurstöðu starfshóps um sumaropnun leikskóla. Sumarlokun leikskólanna fimm spanni u.þ.b. tvo mánuði sumarsins.

    Bæjarráð staðfestir tillögu fræðslunefndar.

  13. 13. Fræðslunefnd - 105

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8.desember, lögð fram til staðfestingar.

    1. 13.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-20222110117
    2. 13.2 Reglur um leikskóla2110048
    3. 13.3 Sumarlokun leikskóla 20222110165
  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 302

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. desember lögð fram til staðfestingar.

    1. 14.1 730 Stekkjartún 1 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús2110047
    2. 14.2 740 Naustahvammur 67 - Umsókn um byggingarleyfi byggja við löndunarhús, seinni hluti2111128
    3. 14.3 730 Stekkjarholt 19-21 - Umsókn um lóð2112001
    4. 14.4 730 Ægisgata 9 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2111144
    5. 14.5 730 Heiðarvegur 18 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2110045
    6. 14.6 Umsókn um framkvæmdaleyfi - sjóvarnir í Norðfirði og Eskifirði2110110
    7. 14.7 730 Stekkjargrund - Fyrirspurn um fjölgun íbúða2112024
    8. 14.8 750 Skólavegur 57 - Fyrirspurn um breytta notkun2112025
    9. 14.9 Krafa um skaðabætur vegna fasteignanna að Mánagötu 3 og 7 Reyðarfirði2106098
  15. 15. Hafnarstjórn - 271

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. desember lögð fram til staðfestingar.

    1. 15.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20212005026
    2. 15.2 Endurbygging/endurnýjun stálþilja vegna tæringar1710016
    3. 15.3 Hafnarsvæði við Landanaust2111129
    4. 15.4 Þróun hafnarsvæða2108027
    5. 15.5 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica2112004
    6. 15.6 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 20212111180
  16. 16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 94

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 29. nóvember, lögð fram til staðfestingar.

    1. 16.1 Styrkur í sund og líkamsrækt fyrir ungt fólk með krabbamein
    2. 16.2 Innleiðing laga um farsæld barna í Fjarðabyggð
    3. 16.3 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022
    4. 16.4 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022
    5. 16.5 UÍA beiðni um styrk á árinu 2022