Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 105

8. desember 2021, kl. 16:30 til 18:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 736 liður 13

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8.desember, lögð fram til staðfestingar.

  • Bæjarstjórn, fundur 324 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-2022

    Mál 2110117 Allur ferill málsins

    Skólastjórar Nesskóla og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar sögðu frá helstu breytingum á skólanámskrá og starfsáætlunum skólanna og svöruðu spurningum sem fram komu á fundinum. Fræðslunefnd samþykkir starfsáætlanirnar og þakkar skólastjórunum fyrir góða kynningu og greinargóð svör.

  2. 2. Reglur um leikskóla

    Mál 2110048 Allur ferill málsins

    Farið var yfir tillögu að breytingu á reglum um leikskóla. Lagt er til að í reglunum verði kveðið á um að skólaár leikskóla sé skilgreint frá 1. ágúst til 31. júlí og börnum í elsta árgangi verði boðið upp á sumarfrístund í ágúst. Tillaga að breytingu á reglunum sem vörðuðu afslátt af leikskólagjöldum er vísað til samráðshóps um málefni leikskóla. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum. Vísað til bæjarráðs.

  3. 3. Sumarlokun leikskóla 2022

    Mál 2110165 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað um sumarlokun leikskóla. Í minnisblaðinu er gert ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum og er það í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum og niðurstöðu starfshóps um sumaropnun leikskóla. Þá kemur fram að sumarlokun leikskólanna verði stillt af þannig að sumarlokun leikskólanna fimm spanni u.þ.b. tvo mánuði sumarsins. Lagt er til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2022 verði þessi: Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 20.06-15.07 báðir dagar meðtaldir, Kæribær Fáskrúðsfirði 20.06-15.07 báðir dagar meðtaldir, Lyngholt Reyðarfirði 04.07-29.07 báðir dagar meðtaldir, Eyrarvellir Norðfirði 15.07-12.08 báðir dagar meðtaldir, Dalborg Eskifirði 20.07-17.08 báðir dagar meðtaldir. Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum allt að átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður sem því nemur. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.