Fræðslunefnd, fundur 106
12. janúar 2022, kl. 16:30 til 18:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, embættismaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 739 liður 14
Fundargerð fræðslunefndar frá 12.janúar lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 325 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 12.janúar samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-2022
Mál 2110117 Allur ferill málsins
Skólastjórar leikskólans Dalborgar og Eskifjarðarskóla sögðu frá helstu breytingum á skólanámskrá og starfsáætlunum skólanna og svöruðu spurningum fundarmanna. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlanir og þakkar skólastjórunum fyrir góða kynningu og greinargóð svör.
-
2. Fundaáætlun fræðslunefndar vor 2022
Mál 2201065 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra vegna fundaáætlunar fræðslunefndar fyrir fyrri hluta ársins 2022. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi áætlun.
-
3. Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar
Mál 2201064 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað um fyrirkomulag skólamáltíða í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar. Í minnisblaðinu kemur fram að matseðill skólamáltíða er samræmdur milli skóla í Fjarðabyggð og skólamáltíðir framleiddar í skólunum nema í grunnskólunum á Eskifirði, Norðfirði og Reyðarfirði, en þar eru þær framleiddar af matvælafyrirtæki í Fjarðabyggð, Fjarðaveitingum. Samningur við Fjarðaveitingar rennur út vorið 2022. Ennfremur kemur fram að fullnægjandi aðstaða til matvælaframleiðslu er ekki til staðar í fyrrgreindum grunnskólum. Fræðslunefnd leggur til að skólamáltíðir í grunnskólunum á Eskifiði, Norðfirði og Reyðarfirði verði boðnar út til næstu þriggja skólaára með möguleika á framlengingu í tvisvar sinnum eitt ár. Málinu er vísað til bæjarráðs til umfjöllunar.
-
4. Skóladagatöl 2022-2023
Mál 2201063 Allur ferill málsins
Fyrir liggja verklagsreglur um staðfestingu skóladagatala og minnisblað vegna gerðar skóladagatala fyrir skólaárið 2022-2023. Í minnisblaðinu kemur fram að nú þegar hefur verið gefið út hvenær sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð verður og lagt er til að fyrsti skóladagur grunnskólanna verði 22. ágúst 2022. Fræðslustjóra er falið að vinna með skólastjórum skólanna að samræmingu skóladagatala.
-
5. Niðurstöður úr Skólavoginni
Mál 1311034 Allur ferill málsins
Farið var yfir gögn úr Skólavoginni, rekstrarupplýsingar grunnskóla 2020 og nemendakönnun 6.-10. bekkjar 2021-2022. Lagt fram til kynningar.