Bæjarráð, fundur 735
6. desember 2021, kl. 08:30 til 09:45, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 324 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Einar Már Sigurðsson, Pálína Margeirsdóttir, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð bæjarráðs frá 6. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Brunavarnir í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Mál 2111140 Allur ferill málsins
Bréf frá foreldrafélagi Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er varðar brunavarnir í skólamiðstöðinni.
Vísað til slökkviliðsstjóra til úrlausnar.
-
2. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - endurskoðun 2021 - Nýjar leiðbeiningar og fyrirmyndir að samþykkt um stjórn sveitarfélaga í október 2021
Mál 2110020 Allur ferill málsins
Lagðar fram breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir breytingar á samþykktinni fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
3. Lántaka á árinu 2021
Mál 2102119 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir stöðu lausafjár hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra að skoða lántökur í samræmi við samþykktir í fjárhagsáætlun ársins. Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði á móti.
-
4. Minnisblað sambandsins um endurskoðaða þjóðhagsspá
Mál 2112023 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélagas um nýútkomna endurskoðaða þjóðhagsspá Hagstofu Íslands og áhrif á forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga.
Vísað til fjármálastjóra.
-
5. Krafa vegna fasteignanna að Mánagötu 3 og 7 Reyðarfirði
Mál 2106098 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál samkomulag við eiganda Mánagötu 3 og 7 um málalok.
Bæjarráð samþykkir niðurstöður málsins.
-
6. Vatnstjón á Eyrarstíg 1
Mál 1801118 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál samkomulag um málslok.
Bæjarráð samþykkir niðurstöður.
-
7. Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021
Mál 2111170 Allur ferill málsins
Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga verður haldinn 10. desember í fjarfundi.
Bæjarráð felur bæjarritara að fara með umboð sveitarfélagsins á aðalfundinum.
-
8. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021
Mál 2102016 Allur ferill málsins
Fundargerð 903. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar
-
9. Hluthafafundur Raflagna Austurlands
Mál 2112022 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð hluthafafundar í Raflögnum Austurlands sem boðaður er 17. desember nk. Lagðar eru fram tillögur um jöfnun hlutafjár á móti tapi í félaginu. Engin starfsemi hefur verið í félaginu. Fjarðabyggð er eigandi 5,62% hlutar. Óskað er eftir að sveitarfélagið veiti Jóhanni Pétri Jóhannsyni umboð á fundinn.
Bæjarráð samþykkir að veita Jóhanni Pétri Jóhannsyni umboð á hluthafafundinn.
-
10. Barnaverndarnefnd 2021
Mál 2101080 Allur ferill málsins
Fundargerð barnarverndarnefndar frá 2. desember lögð fram til staðfestingar.