NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 43
13. desember 2021, kl. 16:30 til 18:05, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Bjarki Ingason, varamaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 324 liður 8
Fundargerð tekin á dagskrá með afbrigðum.
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Styrkveitingar menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar
Mál 2110098 Allur ferill málsins
Lögð fram samantekt um styrki hafnarstjórnar til menningartengdra verkefna á síðustu tíu árum. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir sameiginlegum fundi með hafnarstjórn eða fulltrúum hennar, í upphafi nýs árs.
-
2. Samantekt yfir verkefni Menningarstofu Fjarðabyggðar/Tónlistarmiðstöðvar 2021
Mál 2112029 Allur ferill málsins
Forstöðumaður gerði grein fyrir framkvæmd BRAS. Lögð fram skýrsla til Austurbrúar og yfirlit yfir verkefni og útlagðan kostnað Menningarstofu og Tónlistarmiðstöðvar á árinu 2021 vegna BRAS.
-
3. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2022
Mál 2112033 Allur ferill málsins
Lagðar fram upplýsingar um umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða. Atvinnu- og þróunarstjóri gerði grein fyrir umsóknum en sótt var um fjögur verkefni fyrir árið 2022 til sjóðsins. Þrjú þeirra eru eingöngu miðuð við uppmælingar og hönnun en eitt til viðhalds, breytinga og framkvæmda. Um er að ræða Bleiksárfoss Eskifirði, Búðarárfoss Reyðarfirði, Streytishvarf Breiðdal og Franski grafreiturinn Fáskrúðsfirði.
-
4. Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 2022
Mál 2108149 Allur ferill málsins
Styrkur til fornleifarannsókna á árinu 2022 verður sambærilegur og á liðnum árum - kr. 1.000.000.
-
5. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing
Mál 2106148 Allur ferill málsins
Tilnefning fulltrúa í starfshóp um innleiðingu stefnu. Forstöðumaður stjórnsýslu og varaformaður menningar- og nýsköpunarnefndar munu sitja í hópnum f.h. nefndarinnar.
-
6. Menningarstyrkir 2021
Mál 2101186 Allur ferill málsins
Beiðni um að styrkir til Sinfóníuhljómsveitar Austurlands og Berglindar Agnarsdóttur verði færðir yfir á næsta fjárhagsár. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að umræddir tveir menningarstyrkir færist yfir á fjárhagsárið 2022. Beiðni um yfirfærslu fjármagns vísað til fjármálastjóra.
-
7. Erindisbréf starfshóps um framtíðarsýn Stríðsárasafns
Mál 2111093 Allur ferill málsins
Framlögð drög erindisbréfs fyrir starfshóp sem móti framtíðarsýn fyrir Stríðsárasafnið á Reyðarfirði í tengslum við kaup Fjarðabyggðar á munum Hinriks Steinssonar. Bæjarráð hefur skipað sem fulltrúa í starfshópinn Ragnar Sigurðsson og Magna Þór Harðarson formann menningar- og nýsköpunarnefndar, sem jafnframt verður formaður hópsins. Jafnframt skipa starfshópinn forstöðumaður safnastofnunar, sem verður starfsmaður hópsins, atvinnu- og þróunarstjóri og sviðsstjóri framkvæmdasviðs.
-
8. Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021
Mál 2111170 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar stofnsamningur Héraðsskjalasafns Austfirðinga en breytingar á samningnum voru samþykktar á aðalfundi safnsins 10.desember sl.