NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 42
25. október 2021, kl. 16:30 til 17:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Magnea María Jónudóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 732 liður 22
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 25. október lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 321 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 25. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kaup á munum fyrir Íslenska stríðsárasafnið
Mál 2110109 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál minnisblað upplýsingafulltrúa um kaup á munum fyrir Íslenska Stríðsárasafnið á Reyðarfirði. Vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar með ósk um afstöðu nefndarinnar. Erindið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði í byrjun nóvember. Menningar- og nýsköpunarnefnd telur mikilvægt að gengið verði frá kaupum á safnmunum og farið verði í frekari uppbyggingu á Íslenska Stríðsárasafninu í beinu framhaldi. Nefndin tekur undir áhersluatriði sem koma fram í framlögðu minnisblaði til bæjarráðs um að skipaður verði starfshópur til að móta framtíðarsýn fyrir safnið. Vísað til bæjarráðs.
-
2. Styrveitingar menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar
Mál 2110098 Allur ferill málsins
Umræða um fyrirkomulag styrkveitinga menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar til menningartengdra mála og viðburða. Nefndin óskar eftir minnisblaði frá fjármálastjóra um sundurliðun yfir veitta árlega styrki til menningarmála á síðustu átta árum úr hafnarsjóði. Þegar minnisblað liggur fyrir mun menningar- og nýsköpunarnefnd óska eftir sameiginlegum fundi nefndarinnar með hafnarstjórn.
-
3. Umsóknir í Uppbyggingarsjóð 2021
Mál 2110096 Allur ferill málsins
Umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð var til 18. október. Gerð var grein fyrir tveimur umsóknum frá menningarstofu. Um er ræða umsókn vegna Upptakts á Austurlandi 2022 og Fjölbreyttar listasmiðjur og listsýningar í Fjarðabyggð 2022.
-
4. Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands 2021
Mál 2109235 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Sjóminjasafns Austurlands og ársreikningur 2020.
-
5. Menningarstyrkir 2021
Mál 2101186 Allur ferill málsins
Beiðni um tvær frestanir á greiðslu menningarstyrkja á árinu 2021 vegna Covid-19. Um er að ræða ljósmyndasýningu í Sköpunarmiðstöðinni kr. 50.000 og Listasýningu í tengslum við Queernes í Neskaupstað kr. 100.000. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að umræddir tveir menningarstyrkir færist yfir á fjárhagsárið 2022. Beiðni um yfirfærslu fjármagns vísað til fjármálastjóra.