Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 732

1. nóvember 2021, kl. 08:30 til 12:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 321 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 1. nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir

    Mál 2001140 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til umfjöllunar í bæjarráði minnisblaði Mannvits vegna burðarvirkis stálgrindar í þaki Fjarðabyggðarhallarinnar, dagsett 21. október 2021. Þegar endanleg skýrsla liggur fyrir verður málið tekið fyrir að nýju í nefndinni.

    Bæjarráð fór yfir málið og tekur það að nýju fyrir þegar endanleg skýrsla liggur fyrir.

  2. 2. Dalborg, hönnun á viðbyggingu

    Mál 2002039 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs niðurstöðu útboðs viðbyggingar leikskólans Dalborgar sem lauk föstudaginn 22. október síðastliðinn. Engin tilboð bárust í verkið. Nefndin fól sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fylgja málinu eftir samkvæmt umræðu á fundi nefndarinnar.

    Bæjarráð vísar málinu til skoðunar bæjarstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs.

  3. 3. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2021

    Mál 2104090 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs um stöðu framkvæmda ársins 2021.

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025

    Mál 2104074 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að tillögu að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar til fyrri umræðu í bæjarstjórn fyrir árið 2022 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2023-2025.

    Bæjarráð samþykkir að vísa drögum fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2022 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2023 til 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  5. 5. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2022

    Mál 2109077 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs.

    Bæjarráð samþykkir forsendur fyrir gjaldskrá og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs og fjármálastjóra að útfæra orðalag gjaldskrár og leggja að nýju fyrir bæjarráð til staðfestingar.

  6. 6. Gjaldskrá fasteignagjalda 2022

    Mál 2109092 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá fasteignagjalda 2022 og afslættir til eldri borgara og örorkulífeyrisþega lögð fram til umræðu og samþykktar, ásamt greinargerð fjármálastjóra.

    Gjaldskrá fasteignagjalda 2022 og afslættir til eldri borgara og örorkulífeyrisþega vísað til bæjarstjórnar til samþykktar.

  7. 7. Útsvar 2022

    Mál 2110151 Allur ferill málsins

    Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Bæjarráð vísar ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars til staðfestingar bæjarstjórnar.

  8. 8. Kaup á munum fyrir Íslenska stríðsárasafnið

    Mál 2110109 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til umfjöllunar bæjarráðs minnisblaði upplýsingafulltrúa merkt sem trúnaðarmál um kaup á munum fyrir Íslenska Stríðsárasafnið á Reyðarfirði. Menningar- og nýsköpunarnefnd telur mikilvægt að gengið verði frá kaupum á safnmunum og farið verði í frekari uppbyggingu á Íslenska Stríðsárasafninu í beinu framhaldi. Nefndin tekur undir áhersluatriði sem koma fram í framlögðu minnisblaði til bæjarráðs um að skipaður verði starfshópur til að móta framtíðarsýn fyrir safnið.

    Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga um kaup á mununum. Skipaður verði starfshópur af bæjarráði í framhaldi með vísan til tillagna í minnisblaði. Vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra að útfæra tillögur að fjármögnun kaupanna.

  9. 9. Málefni brothættra byggða

    Mál 2103191 Allur ferill málsins

    Byggðastofnun hefur samþykkt að Stöðvarfjörður verið tekinn inn í verkefnið Brothættar byggðir. Skipa þarf tvo aðalmenn og tvo til vara, í starfshóp vegna verkefnisins.

    Bæjarráð samþykkir að aðalfulltrúar Fjarðabyggðar verði forseti bæjarstjórnar og atvinnu- og þróunarstjóri. Til vara verði bæjarstjóri og bæjarritari.

  10. 10. Stafræn þróun sveitarfélaga

    Mál 2011213 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um framlög til starfrænnar þróunar sveitarfélga á árinu 2022. Hlutur Fjarðabyggðar í verkefninu eru um 3,3 m.kr.

    Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu starfræn þróun sveitarfélaga og felur bæjarstjóra ásamt fjármálastjóra útfærslu fjármögnunar.

  11. 11. Samningur um styrk til almenningssamgangna

    Mál 2110172 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur við Byggðastofnun fyrir hönd samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, um styrkveitingu til almenningssamgangna í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  12. 12. Umsókn um stofnframlag til bygginga á húsnæði

    Mál 2102091 Allur ferill málsins

    Kynnt niðurstaða Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi umsókn Bæjartúns um úthlutun stofnframlaga ríkisins 2021 en umsókn félagsins var hafnað. Fjarðabyggð hafði áður samþykkt umsóknina fyrir sitt leyti.

  13. 13. Forvarna- og öryggisnefnd erindisbréf og fundargerðir

    Mál 2110173 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðuðu erindisbréf forvarna- og öryggisnefndar ásamt minnisblaði.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréf og felur bæjarritara frágang þess.

  14. 14. Ágóðahlutagreiðsla 2021

    Mál 2110153 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar upplýsingar um ágóðahlutagreiðslu frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands á árinu 2021. Ágóðahluti Fjarðabyggðar er 4.703.400 kr.

  15. 15. 735 Árdalur 13 - Umsókn um lóð

    Mál 2110081 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Erlu Bjargar Þórhallsdóttur þar sem sótt er um lóðina við Árdal 13 á Eskifirði undir einbýlishús.

    Bæjaráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  16. 16. 730 Hjallaleira 13 - Umsókn um lóð

    Mál 2110107 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Gestsstaða ehf. þar sem sótt er um lóðina við Hjallaleiru 13 á Reyðarfirði undir athafnastarfsemi.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  17. 17. Aðalfundur Fiskiræktar og veiðifélags Norðfjarðarár 10. nóvember 2021

    Mál 2110174 Allur ferill málsins

    Tilnefna þarf fulltrúa á aðalfund Fiskiræktar- og veiðifélags Norðfjarðarár sem haldinn verður 10.nóvember.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn með fullt og ótakmarkað umboð.

  18. 18. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 3. Nóvember 2021

    Mál 2110069 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Heilbrigðiseftirlits Austurlands en aðalfundur er boðaður 3. nóvember 2021 á Hornafirði.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að sækja fundinn með fullt og ótakmarkað umboð.

  19. 19. Samstarf við Leigufélagið Bríet um leiguhúsnæði

    Mál 2105097 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að viljayfirlýsingu um uppbyggingu á fjórum leiguíbúðum á Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og felur bæjarstjóra undirritun hennar.

  20. 20. Ráðstefna í Hollandi í október 2021

    Mál 2109128 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir ferð sinni og verkefnastjóra hafna til Rotterdam vegna ráðstefnu um græna orkugjafa í tengslum við verkefnið grænn orkugarður á Reyðarfirði. Kynnt efni samstarfsyfirlýsingar sem bæjarstjóri undirritaði við Rotterdamhöfn.

  21. 21. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 299

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. október lögð fram til afgreiðslu.

    1. 21.1 730 Hjallaleira 13 - Umsókn um lóð2110107
    2. 21.2 735 Árdalur 13 - Umsókn um lóð2110081
    3. 21.3 750 Nesvegur 13 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2110055
    4. 21.4 730 Heiðarvegur 12 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2110091
    5. 21.5 735 Hlíðarendavegur 1B - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2110100
    6. 21.6 Endurheimt votlendis í landi Kolfreyjustaða í Fjarðabyggð2110122
    7. 21.7 Breyting á reglugerð um strandsvæðisskipulags í samráðsgátt2110146
    8. 21.8 Breyting á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði2110104
    9. 21.9 Gamli barnaskólinn á Eskifirði endurbygging2108096
    10. 21.10 Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir2001140
    11. 21.11 Uppsetning búnaðar til útsendinga útvarps í öllum jarðgöngum á Íslandi2110094
    12. 21.12 Dalborg, hönnun á viðbyggingu2002039
    13. 21.13 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20222109077
  22. 22. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 42

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 25. október lögð fram til afgreiðslu.

    1. 22.1 Kaup á munum fyrir Íslenska stríðsárasafnið2110109
    2. 22.2 Styrveitingar menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar2110098
    3. 22.3 Umsóknir í Uppbyggingarsjóð 20212110096
    4. 22.4 Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands 20212109235
    5. 22.5 Menningarstyrkir 20212101186