NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 299
25. október 2021, kl. 16:00 til 17:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 732 liður 21
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. október lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 321 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 730 Hjallaleira 13 - Umsókn um lóð
Mál 2110107 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Gestsstaða ehf, dagsett 14. október 2021, þar sem sótt er um lóðina við Hjallaleiru 13 á Reyðarfirði undir athafnastarfsemi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
2. 735 Árdalur 13 - Umsókn um lóð
Mál 2110081 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Erlu Bjargar Þórhallsdóttur, dagsett 12. október 2021, þar sem sótt er um lóðina við Árdal 13 á Eskifirði undir einbýlishús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
3. 750 Nesvegur 13 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2110055 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Fjarðabyggðar, dagsett 8. október 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir sorpmóttöku á lóðinni við Nesveg 13 á Fáskrúðsfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur sé endurnýjaður.
-
4. 730 Heiðarvegur 12 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2110091 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Sigurbjörns Marinóssonar, dagsett 13. október 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar db. Margrétar Einarsdóttur að Heiðarvegi 12 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
5. 735 Hlíðarendavegur 1B - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2110100 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Vilborgar Kjerulf, dagsett 13. október 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Hlíðarendavegi 1B á Eskifirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
6. Endurheimt votlendis í landi Kolfreyjustaða í Fjarðabyggð
Mál 2110122 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Biskupsstofu, dags. 27. September 2021, þar sem leitað er afstöðu á því hvort fyrirhuguð endurheimt votlendis í landi Kolfreyjustaða í Fáskrúðsfirði sé framkvæmdaleyfisskyld.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að um framkvæmdaleyfisskylda framkvæmd sé að ræða. Nefndin samþykkir jafnframt útgáfu framkvæmdaleyfis vegna fyrirhugaðrar endurheimtar á grunni framlagðra gagna.
-
7. Breyting á reglugerð um strandsvæðisskipulags í samráðsgátt
Mál 2110146 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að breytingu á reglugerð um gerð strandsvæðisskipulags.
-
8. Breyting á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði
Mál 2110104 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 14. október 2021, þar sem óskað eftir umsögn Fjarðabyggðar vegna tilkynningar Laxa Fiskeldis ehf. um breytingu á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur atvinnu- og þróunarstjóra í samráði við bæjarstjóra sem og aðra starfsmenn að vinna umsögn vegna tilkynningar Laxa Fiskeldis ehf í samræmi við umræður á fundinum.
-
9. Gamli barnaskólinn á Eskifirði endurbygging
Mál 2108096 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að lóð, aðkomu og umhverfi gamla Barnaskólans á Eskifirði unnar af Áslaugu Katrínu Aðalsteinsdóttur.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar tillögum til úrvinnslu sviðsstjóra framkvæmdasviðs. Sviðsstjóra er falið að yfirfara hönnun, kostnaðargreina og leggja fram tillögur að áfangaskiptingu verksins, með tilliti til samkomulags Fjarðabyggðar og Hollvinasamtaka barnaskólans á Eskifirði um endurgerð skólabyggingarinnar. Sviðsstjóra er jafnframt falið að kynna tillöguna í byggingarnefnd skólans.
-
10. Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir
Mál 2001140 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað Mannvits vegna burðarvirkis stálgrindar í þaki Fjarðabyggðarhallarinnar, dagsett 21. október 2021.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fylgja málinu eftir. Þegar endanleg skýrsla liggur fyrir verður málið tekið fyrir að nýju. Nefndin vísar minnisblaði jafnframt til kynningar í bæjarráði.
-
11. Uppsetning búnaðar til útsendinga útvarps í öllum jarðgöngum á Íslandi
Mál 2110094 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar erindi Samgöngufélagsins, dagsett 13. október 2021, er varðar uppsetningu búnaðar til útsendinga útvarps öllum jarðgöngum á Íslandi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir allar aðgerðir til að efla samgöngur og öryggismál sem að þeim snúa. Nefndin vísar erindinu til bæjarstjóra til skoðunar.
-
12. Dalborg, hönnun á viðbyggingu
Mál 2002039 Allur ferill málsins
Útboði í viðbyggingu leikskólans Dalborg voru lauk föstudaginn 22 október síðastliðinn. Engin tilboð bárust í verkið.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til bæjarráðs. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að fylgja málinu eftir samkvæmt umræðu á fundinum.
-
13. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2022
Mál 2109077 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði tillaga að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs vegna 2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að leggja fyrir bæjarráð, til endanlegrar afgreiðslu, gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs vegna 2022 í samræmi við umræður og upplýsingar á fundinum.