Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 298

11. október 2021, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 730 liður 20

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 11.október lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 320 liður 4

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 11. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2022

    Mál 2104129 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmda- og viðhaldsáætlanir sviðsstjóra framkvæmdasviðs.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og sviðsstjórar fara yfir fjárhagsáætlanirnar fyrir árið 2022.

    Nefndin samþykkir áætlanirnar sem þegar hafa verið kynntar í bæjarráði.

  2. 2. Framkvæmdasvið verkefni 2021

    Mál 2106027 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga sviðsstjóra framkvæmdasviðs að körfuboltavelli á lóð Grunnskóla Eskifjarðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu sviðsstjóra. Jafnframt samþykkir nefndin að framkvæmdir hefjist sem fyrst. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins 2021.

  3. 3. Deiliskipulag Hlíðarenda - breyting, safnasvæði

    Mál 2006072 Allur ferill málsins

    Lögð fram til umfjöllunar tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda þar sem gert er ráð fyrir breytingu á lóðinni við Strandgötu 98a auk þess að gert er ráð fyrir lóð undir safnastarfsemi ásamt bílastæðum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna áfram að breytingu skipulagsins og leggja fyrir nefndina að nýju.

  4. 4. 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1703117 Allur ferill málsins

    Lögð fram til umfjöllunar tillaga að deiliskipulagi Skíðasvæðisins í Oddsskarði þar sem m.a. er gert ráð fyrir færslu byrjendalyftu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna áfram að gerð skipulagsins og leggja fyrir nefndina að nýju.

  5. 5. 740 Marbakki 3 - Umsókn um byggingarleyfi, bílskúr

    Mál 2109143 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Jóhanns Óla Ólafsonar, dagsett 14. september 2021, þar sem óskað er eftir að heimild til að byggja 60,6 m2 og 256,8 m3 bílskúr á lóð hans að Marbakka 3 á Norðfirði. Samþykki nágranna liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  6. 6. 735 Árdalur 2-18 - Umsókn um byggingarleyfi raðhús

    Mál 2109213 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn AMC wave ehf, dagsett 21. september 2021, þar sem óskað er eftir að heimild til að byggja 950 m2 og 3.804.7 m3 níu íbúða raðhús á lóð fyrirtækisins að Árdal 2-18 á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  7. 7. 735 Dalbraut 3 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging við leikskóla

    Mál 2110036 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 6. október 2021, þar sem óskað er eftir heimild til að byggja 468,5 m2 og 2156,8 m3 viðbyggingu við leikskólann Dalborg á Eskifirði. Í viðbyggingu er gert ráð fyrir tveimur leikskóladeildum ásamt starfsmannaaðstöðu, sérkennslu og fjölnotasal.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  8. 8. 740 Víðimýri 16 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2110019 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Sigurðar Steins Einarssonar, dagsett 5. október 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Víðimýri 16-18 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  9. 9. Strenglagning vegna byggingaframkvæmda á Norðfirði

    Mál 2109187 Allur ferill málsins

    Lög fram beiðni Rarik, dagsett 13. september 2021, um framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar á Norðfirði, rjúfa þarf Naustahvammsveg í tengslum við framkvæmdina.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir beiðnina.