Bæjarráð, fundur 733
15. nóvember 2021, kl. 08:30 til 10:50, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 322 liður 2
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 15. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025
Mál 2104074 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að breytingu á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022 - 2025 milli umræðna fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur um breytingar á fjárhagsáætlun 2022 til 2025 og vísar þeim ásamt fjárhagsáætluninni í heild til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
2. Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2104079 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit yfir rekstur og fjárfestingar Fjarðabyggðar fyrir janúar - september sem trúnaðarmál auk yfirlits yfir launakostnað og skatttekjur fyrir janúar - október.
-
3. Gjaldskrá leikskóla 2022
Mál 2109081 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju gjaldskrá fyrir leikskólagjöld í leikskólum Fjarðabyggðar. Ákvörðun um endanlega gjaldskrá leikskóla 2022 var frestað þar til endurskoðun á reglum um leikskólagjöld væri lokið.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá með breytingum á afsláttarkafla í tillögu að gjaldskrá. Gjaldskráin taki gildi frá og með 1. janúar 2022.
-
4. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2022
Mál 2109077 Allur ferill málsins
Framlögð uppfærð tillaga að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs fyrir árið 2022 með breyttu orðalagi í samræmi við umræður á fundi bæjarráðs 1. nóvember 2021.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs og taki hún gildi 1. janúar 2022.
-
5. Málefni Einarsstofnunar og Einarsstofu við Heydalakirkju í Breiðdal.
Mál 2111056 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá fulltrúum sóknarnefndar Heydalakirkju þar sem farið er yfir málefni Einarsstofnunar og Einarsstofu í Breiðdal. Óskað er tilnefningar fulltrúa í stjórn Einarsstofu.
Bæjarráð fagnar framtaki um stofnun Einarsstofu til minningar um Einar Sigurðsson prest og sálmaskáld. Fjarðabyggð óskar eftir að fá að fylgjast með verkefninu en skipar ekki fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn.
-
6. UÍA beiðni um styrk á árinu 2022
Mál 2111080 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Ungmennar og íþróttasambands Austurlands um framlög sveitarfélaga til starfs sambandsins á árinu 2022.
Vísað til íþrótta- og tómstundanefndar til kynningar en framlag er áætlað á fjárhagsáætlun ársins 2022 til sambandsins.
-
7. Samstarf við Leigufélagið Bríet um leiguhúsnæði
Mál 2105097 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samningi við Leigufélagið Bríet um fjórar íbúðir að Leynimel á Stöðvarfirði þar sem gert er ráð fyrir því að íbúðirnar verði lagðar inn í leigufélagið.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
8. Verksamningur um almenningssamgöngur Breiðdalsvík - Reyðarfjörður
Mál 2111065 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samningi við SvAust ehf. um almenningssamgöngur á leiðinni Breiðdalur - Reyðarfjörður - Breiðdalur um eina fasta ferð á dag á leiðinni.
Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans ásamt því að taka upp viðræður við rekstraraðila almenningssamgangna í Fjarðabyggð.
-
9. Umsókn um stofnframlag til bygginga á húsnæði
Mál 2102091 Allur ferill málsins
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur opnað að nýju fyrir umsóknir um stofnframlög til byggingar íbúðarhúsnæðis. Lagt er til að sótt verði að nýju um á sömu forsendum og áður, en undir öðru nafni en Bæjartún hses.
Bæjarráð samþykkir stofnframlag í nýrri umsókn á sömu forsendum og gerðar voru í þeirri fyrri.
-
10. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021
Mál 2102016 Allur ferill málsins
Fundargerðir sambandsins frá 24. september og 29. október lagðar fram til kynningar.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 300
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 8. nóvember lögð fram til afgreiðslu.
- 11.1 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing2106148
- 11.2 Boð um þátttöku sveitarfélaga í námskeiðinu Loftslagsvernd í verki2111021
- 11.3 Innleiðing hringrásarhagkerfisins2012172
- 11.4 Samþykkt um hunda- og kattahald - endurskoðun 20212110088
- 11.5 735 Deiliskipulag Leira 1, breyting - sameining og stækkun lóða við Leirubakka og Leirukrók2111040
- 11.6 735 Leirubakki 4 og Leirukrókur 4 - Umsókn um sameiningu og stækkun lóða2111037
- 11.7 740 Nesgata 7 og 7A - Umsókn um byggingarleyfi, breytingar inni2109188
- 11.8 Uppsetning á útiæfingatækjum2107013
- 11.9 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20212102187
-
12. Fræðslunefnd - 104
Fundargerð fræðslunefndar frá 10. nóvember lögð fram til afgreiðslu.
- 12.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-20222110117
- 12.2 Sumarlokun leikskóla 20222110165
- 12.3 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034