740 Nesgata 7 og 7A - Umsókn um byggingarleyfi, breytingar inni
Mál 2109188 Fyrst á dagskrá 4. október 2021, síðast 18. nóvember 2021. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 297 liður 14
Lagt fram erindi Sniddu Arkitektarstofu fh. eiganda Nesgötu 7a á Norðfirði, dagsett 17. september 2021, þar sem óskað er eftir að skilgreiningu deiliskipulags fyrir lóðina verið breytt þannig að þar verði líka hægt að gera ráð fyrir íbúðum. Samkvæmt aðalskipulagi er reiturinn V3/A5 blönduð landnotkun verslunar- og þjónustu og athafnasvæðis, jafnframt segir að Þar sem aðstæður leyfa megi gera ráð fyrir íbúðum á verslunar- og þjónustusvæðum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu.
-
Bæjarráð, fundur 729 liður 17.14
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 297“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 320 liður 3.14
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 297“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 300 liður 7
Lagt fram erindi Sniddu Arkitektarstofu fh. eiganda Nesgötu 7a á Norðfirði, dagsett 17. september 2021, þar sem óskað er eftir að skilgreiningu deiliskipulags fyrir lóðina verið breytt þannig að þar verði líka hægt að gera ráð fyrir íbúðum. Samkvæmt aðalskipulagi er reiturinn V3/A5 blönduð landnotkun verslunar- og þjónustu og athafnasvæðis, jafnframt segir að Þar sem aðstæður leyfa megi gera ráð fyrir íbúðum á verslunar- og þjónustusvæðum. Samþykki annarra eiganda hússins liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir gerð íbúðar við Nesgötu 7a. Nefndin samþykkir jafnframt óverulega breytingu deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar. Farið verði með breytinguna í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
-
Bæjarráð, fundur 733 liður 11.7
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 300“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 322 liður 3.7
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 300“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.