Bæjarráð, fundur 729
11. október 2021, kl. 08:30 til 12:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 320 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 11. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2022
Mál 2104135 Allur ferill málsins
Lagðar fram samantektir um tillögur fyrir rammaúthlutun vegna ársins 2022.
Vísa til áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun eigna- skipulags- og umhverfisnefndar 2022
Mál 2104129 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna fjárhagsáætlunar og farið yfir viðhalds og framkvæmdaáætlanir framkvæmdasviðs. Leggur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd áherslu á að fá niðurstöðu um hvaða leiðir séu færar til að einangra Fjarðabyggðarhöllina miðað við burðarvirki hennar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að byggja upp körfuboltaaðstöðu við Eskifjarðaskóla m.t.t. tveggja karfa, en að öðru leyti vísar nefndin til gildandi deiliskiplags. Nefndin hefur einnig samþykkt þátttöku i uppbyggingu lóðar við gamla barnaskólann á Eskifirði samkvæmt samningi.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022
Mál 2104133 Allur ferill málsins
Kynnt minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs og stjórnenda í félagsmálum.
Vísað til áframhaldandi vinnu fjárhagsáætlunargerðar.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2022
Mál 2104130 Allur ferill málsins
Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd lokatillögum vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2022 í málaflokki menningarmála. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur samþykkt framlagðar áherslur og
tillögur sem fram koma í minnisblaði bæjarritara.
Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
-
5. Útboð vátrygginga Fjarðabyggðar
Mál 2107049 Allur ferill málsins
Kynntar endanlegar niðurstöður úr útboði trygginga Fjarðabyggðar en lokið er yfirferð tilboðsgagna. Lægstbjóðandi er TM tryggingar hf. og lagt er til að tilboði lægstbjóðanda verði tekið.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, TM trygginga. Bæjarstjóra falið að undirrita tryggingarsamning.
-
6. Borkjarnasafnið í Breiðdal
Mál 2110034 Allur ferill málsins
Bréf Náttúrufræðistofnunar Íslands er varðar viðhaldsmál húsnæðis Borkjarnasafnsins í Breiðdal.
Bæjarráð vísar erindi til framkvæmdasviðs til vinnslu. Bæjarstjóra falið að ræða við Náttúrufræðistofnun um málið.
-
7. Gjaldskrá félagsheimila 2022
Mál 2109091 Allur ferill málsins
Lögð fram minnisblöð vegna breytinga á gjaldskrám fyrir félagsheimilin Egilsbúð og Valhöll. Gjaldskrá félagsheimila 2022 lögð fram til umræðu og samþykktar. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur samþykkt framlagða tillögu að gjaldskrá fyrir félagsheimilin Egilsbúð, Skrúð og Valhöll. Gjaldskrá vísað til bæjarráðs til samþykktar með ósk um að gjaldskrá taki gildi eftir samþykkt í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá félagsheimila og hún taki gildi þegar gildi til samræmis við tillögur í minnisblaði.
-
8. Þróunarverkefni og atvinnulíf.
Mál 2106206 Allur ferill málsins
Kynnt drög að viljayfirlýsingu, LOI, milli Landsvirkjunar, Copenhagen Infrastructure Partner og Fjarðabyggðar, um orkunýtingu frá grænum orkugarði til húshitunar.
Bæjarráð samþykkir efni viljayfirlýsingar og felur bæjarstjóra undirritunar hennar.
-
9. Fyrirhuguð breyting á reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Mál 2110037 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að breytingu á reglugerð nr. 1088/2012 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að yfirfara breytingarnar.
-
10. Fiskeldissjóður - umsóknir 2021
Mál 2107064 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir styrk sem fékkst úr Fiskeldissjóði vegna framkvæmda við Leikskólann Dalborg á Eskifirði. Styrkurinn er að upphæð 42.589.578 kr.
Bæjarráð fagnar framlaginu.
-
11. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
Mál 1904072 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir styrk sem fékkst frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu vegna nýs leiðakerfis almenningssamgangna í Fjarðabyggð. Styrkurinn er veittur á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024 og er að upphæð 8 milljónir kr.
Bæjarráð fagnar framlagi.
-
12. 740 Strandgata 16 - Umsókn um lóð
Mál 2109240 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Nestaks ehf. þar sem sótt er um lóð undir einbýlishús við Strandgötu 16 á Norðfirði. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ræða við lóðarhafa. Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
13. 730 Litlagerði 2, 4 og 6 - Umsókn um lóð
Mál 2107095 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afbreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn AMC wave ehf. þar sem sótt er um lóðirnar við Litlagerði 2, 4 og 6 á Reyðarfirði undir raðhús. Grenndarkynningu er lokið með samþykki nágranna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ræða við lóðarhafa. Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
14. 735 Ystidalur 6-8 - Umsókn um lóð
Mál 2107096 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afbreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn AMC wave ehf. þar sem sótt er um lóðina við Ystadal 6-8 á Eskifirði undir 9 íbúða raðhús. Grenndarkynningu er lokið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ræða við lóðarhafa. Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
15. 735 Miðdalur 17-19 - Umsókn um lóð
Mál 2107097 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afbreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn AMC wave ehf. þar sem sótt er um lóðina við Miðdal 17-19 á Eskifirði undir 9 íbúða raðhús. Grenndarkynningu er lokið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ræða við lóðarhafa. Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
16. ohf. væðing Fjarðabyggðarhafna
Mál 2110056 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Ragnars Sigurðssonar bæjarfulltrúa um að unnið verði óháð mat á áhrifum þess að hlutafélagavæða Fjarðabyggðarhafnir.
Fjármálastjóri aflar frekari gagna í samræmi við umræður á fundi.
-
17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 297
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 4. október lögð fram til afgreiðslu.
- 17.1 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20222104129
- 17.2 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 20222109084
- 17.3 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20222109074
- 17.4 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20222109077
- 17.5 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20222109085
- 17.6 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 20222109087
- 17.7 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20222109088
- 17.8 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20222109089
- 17.9 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20222109093
- 17.10 Svæðisskipulagsnefnd 20212102084
- 17.11 740 Strandgata 16 - Umsókn um lóð2109240
- 17.12 740 Strandgata 18 - Umsókn um lóð2109239
- 17.13 730 Hjallaleira 17 og 19 - Umsókn um lóð2106129
- 17.14 740 Nesgata 7 og 7A - Umsókn um byggingarleyfi, breytingar inni2109188
- 17.15 735 Strandgata 44 - byggingarleyfi - viðbygging lager og skrifstofuhúsnæði2005167
- 17.16 760 Hrauntún 12 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109033
- 17.17 730 Túngata 5 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109189
- 17.18 730 Ásgerði 6 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109221
- 17.19 Hólmanes, Fjarskiptalóð - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109253
- 17.20 Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði1708088
- 17.21 730 Bakkagerði - Umferðaröryggi og lokanir2109249
- 17.22 Endurskoðun Umferðarsamþykktar Fjarðabyggðar 20212109263
- 17.23 Trjákurl til húshitunar1905004
-
18. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 41
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 4. október, lögð fram til afgreiðslu.
- 18.1 Umsókn vegna uppsetningar á varanlegum skúlptúr á Stöðvarfirði2103212
- 18.2 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20222104130
- 18.3 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing2106148
- 18.4 Gjaldskrá félagsheimila 20222109091
- 18.5 Gjaldskrá safna 2022 til 20232109094
- 18.6 Gjaldskrá bókasafna 20222109097
- 18.7 Menningarverðlaun SSA 20212109250
-
19. Íþrótta- og tómstundanefnd - 92
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 4. október, lögð fram til afgreiðslu.
- 19.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025
- 19.2 Gjaldskrár líkamsræktarstöðva 2022
- 19.3 Gjaldskrár íþróttahúsa Fjarðabyggðar 2022
- 19.4 Gjaldskrá sundlauga Fjarðabyggðar 2022
- 19.5 Gjaldskrá Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði 2022
- 19.6 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing
- 19.7 Samningur um SKIDATA kerfið frá Skidata Skandinavia AB
- 19.8 Samstarf íþróttamannvirkja og skóla
-
20. Barnaverndarnefnd 2021
Mál 2101080 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 7. október lögð fram til afgreiðslu.