Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 41

4. október 2021, kl. 16:30 til 17:56, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Magnea María Jónudóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 729 liður 18

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 4. október, lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 320 liður 9

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 4. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn vegna uppsetningar á varanlegum skúlptúr á Stöðvarfirði

    Mál 2103212 Allur ferill málsins

    Beiðni Sköpunarmiðstöðvarinnar um uppsetningu á skilti. Upplýsingafulltrúi fór yfir tilurð málsins og gerði grein fyrir áæætluðum kostnaði. Menningar- og nýsköpunarnefnd líst vel á framkomið erindi og felur upplýsingafulltrúa að útfæra skiltið í samráði við Sköpunarmiðstöðina auk áframhaldandi samskipta við fulltrúa hennar.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2022

    Mál 2104130 Allur ferill málsins

    Lokafrágangur á tillögum vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2022 í málaflokki menningarmála. Formaður fundaði með bæjarráði fyrr í dag en skil á starfs- og fjárhagsáætlunum til fjármálasviðs er 14.október. Lagt fram minnisblað bæjarritara um fjárhagsramma málaflokksins. Fjárhagsrammi menningarmála 2022 er útgefinn 276,6 m.kr. sem er liðlega 27 m.kr. hækkun frá fjárhagsáætlun ársins 2021. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir framlagðar áherslur og tillögur sem fram koma í minnisblaði.

  3. 3. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing

    Mál 2106148 Allur ferill málsins

    Vísað til umsagnar frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 25. ágúst 2021, vegna innleiðingar umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar 2020-2040. Í minnisblaði er farið yfir innleiðingu stefnunnar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að innleiðing verði kynnt í öllum fastanefndum þar sem tilnefndir verða aðilar til að mynda starfshóp um innleiðingu í samræmi við minnisblað. Menningar- og nýsköpunarnefnd mun tilnefna fulltrúa til þátttöku í vinnu til rýni á innleiðingarferlum starfsstöðvar á næsta fundi nefndarinnar.

  4. 4. Gjaldskrá félagsheimila 2022

    Mál 2109091 Allur ferill málsins

    Lögð fram minnisblöð vegna breytinga á gjaldskrám fyrir félagsheimilin Egilsbúð og Valhöll. Gjaldskrá félagsheimila 2022 lögð fram til umræðu og samþykktar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir framlagða tillögu að gjaldskrá fyrir félagsheimilin Egilsbúð, Skrúð og Valhöll. Gjaldskrá vísað til bæjarráðs til samþykktar og taki gildi strax eftir samþykkt í bæjarráði.

  5. 5. Gjaldskrá safna 2022 til 2023

    Mál 2109094 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá minjasafna fyrir árið 2023 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu nefndar. Tillaga er um að allir liðir í gjaldskrá hækki um 100 kr. 1.1.2023. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir hækkun á gjaldskrá safna sem taki gildi 1.1. 2023.

  6. 6. Gjaldskrá bókasafna 2022

    Mál 2109097 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá bókasafna 2022 lögð fram til umræðu. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir gjaldskrá bókasafna hækki ekki á milli ára.

  7. 7. Menningarverðlaun SSA 2021

    Mál 2109250 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir tilnefningum til menningarverðlauna SSA 2021. Frestur til að skila inn tillögum er til 28.október. Forstöðumanni menningarstofu falið að senda inn tilnefningu f.h. nefndarinnar.