NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 40
6. september 2021, kl. 16:30 til 19:05, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
- Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 725 liður 10
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 318 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 6. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Mál 2108124 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri kynnti málefni græns orkugarðs.
-
2. Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar
Mál 2006128 Allur ferill málsins
Smári Geirsson ritari sögu Fáskrúðsfjarðar sat þennan lið fundarins. Umræða um stöðu söguritunar og fyrirhugaða útgáfu bókar um sögu Fáskrúðsfjarðar á næsta ári. Málið verður tekið fyrir á fundi í janúar en þá munu liggja fyrir nánari upplýsingar um útgáfu bókarinnar.
-
3. Staðsetning tjaldsvæðis á Stöðvarfirði
Mál 2108111 Allur ferill málsins
Bréf Íbúasamtaka Stöðvarfjarðar er varðar hugmyndir um framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðisins á Stöðvarfirði. Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar framkomið bréf og fagnar því framtaki sem Íbúasamtök Stöðvarfjarðar hafa sýnt í málinu. Nefndin felur jafnframt atvinnu- og þróunarstjóra að vinna málið áfram í samráði við íbúasamtökin.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2022
Mál 2104130 Allur ferill málsins
Lagður fram rammi að fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarmála á árinu 2022. Áframhald umræðu frá því í sumar. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur stjórnsýslu- og þjónustusviði áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
-
5. Málþing um súðbyrðinginn
Mál 2009198 Allur ferill málsins
Fyrirhugað er að halda málþing um Trébáta og Íslenska strandmenningu í nóvember. Um er að ræða málþing sem frestað var fyrr á árinu vegna Covid-19.
-
6. Menningarstyrkir 2021
Mál 2101186 Allur ferill málsins
Beiðni um frestanir á greiðslu menningarstyrkja á árinu 2021 vegna Covid-19. Um er að ræða tónleika Coney Island Babies og SinfóAust, Erlu Dóru Vogler og málþing í Breiðdal. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að umræddir þrír menningarstyrkir færist yfir á fjárhagsárið 2022. Beiðni um yfirfærslu fjármagns vísað til fjármálastjóra.
-
7. Skapandi sumarstörf 2021
Mál 2102121 Allur ferill málsins
Skýrsla Viktoríu Blöndal verkefnastjóra um fyrirkomulag Skapandi sumarstarfa 2021 lögð fram og kynnt.
-
8. Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 2022
Mál 2108149 Allur ferill málsins
Beiðni áhugafólks um fornleifarannsóknir í Stöðvarfirði um sambærilegan styrk og undanfarin ár. Vísað til vinnu við fjárhagsáætlun 2022.