Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 39

14. júní 2021, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Magnea María Jónudóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 715 liður 7

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 14. júní lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 315 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 14.júní, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2022

    Mál 2104130 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um tillögur til fjárhagsáætlunargerðar 2022, vegna úthlutunar rammafjárveitinga. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála áherslum í minnisblaði að mestu leyti en vísar til ítarbókunar vegna einstakra liða í minnisblaðinu.

    Aðgerðaáætlun um þróun og uppbyggingu safna ásamt niðurstöðu starfshóps um uppbyggingu tjaldsvæða, er vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Aðgerðaáætlunin og niðurstaða starfshópsins verði haft sem leiðarljós við gerð framkvæmdaáætlunar 2022 - 2025.

  2. 2. Endurnýjun búnaðar bókasafna

    Mál 2105118 Allur ferill málsins

    Lagðar fram upplýsingar um búnaðarþörf við bókasöfnin. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni safnastofnunar að ræða við framkvæmdasvið um mögulegar lausnir.