NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 38
17. maí 2021, kl. 16:30 til 18:30, í Fræðslumolanum Austurbrú. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 712 liður 8
Framlögð fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 17. maí sl. til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 314 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 17. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfshópur um nýsköpun og atvinnuþróun
Mál 2002099 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri kynnti stöðu við vinnu starfshóps um nýsköpun og atvinnuþróun í Fjarðabyggð. Farið er fram á frestun á skilum á niðurstöðum hópsins fram á haustmánuði 2021. Menningar- og nýsköpunarnefnd er hlynnt frestun á skilum á vinnu hópsins og að þau verði um miðjan september 2021.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2022
Mál 2104130 Allur ferill málsins
Lagðar fram reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022 auk gagna vegna áætlunar fyrir söfnin í Fjarðabyggð. Lagt fram minnisblað bæjarritara og forstöðumanns safnastofnunar um kostnað við uppbyggingu og þróun safnanna á næstu árum. Formaður nefndarinnar mun funda á næstu dögum með fjármálastjóra en tillögum allra fastanefnda þarf að skila til fjármálastjóra í síðasta lagi 11.júní.
-
3. Tjaldsvæði Fjarðabyggðar sumarið 2021
Mál 2103073 Allur ferill málsins
Farið yfir framkvæmdir og viðhald við tjaldsvæði Fjarðabyggðar árið 2021 með vísan til fjárhagsáætlunar. Lögð fram verkefnaáætlun atvinnu- og þróunarstjóra og fasteigna- og framkvæmdafulltrúa vegna viðhalds- og framkvæmdamála tjaldsvæðanna þar sem tilgreindur er áætlaður kostnaður í hverjum bæjarhluta. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála framlagðri verkefnaáætlun.
-
4. Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar
Mál 2006128 Allur ferill málsins
Umræða um stöðu söguritunar og mögulega útgáfu bókar um sögu Fáskrúðsfjarðar á árinu. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir að fá söguritara á fund nefndarinnar á næstunni.
-
5. Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar - 2020 og 2021
Mál 1911151 Allur ferill málsins
Forstöðumaður safnastofnunar fór yfir fyrirkomulag sumaropnunar safnanna. Lagt er upp með að hvert safn sé opið einn dag í hverri viku í sumar.
-
6. Hernámsdagurinn 2021
Mál 1909078 Allur ferill málsins
Forstöðumaður safnastofnunar lagði fram upplýsingar um fyrirkomulag Hernámsdagsins í sumar. Íbúasamtök Reyðarfjarðar hyggjast standa fyrir dagskrá á hernámsdaginn fimmtudaginn 1.júlí og mun safnastofnun aðstoða við skipulagningu dagsins.
-
7. Endurnýjun búnaðar bókasafna
Mál 2105118 Allur ferill málsins
Framlagt tilboð í búnað til endurnýjunar á úreltum búnaði í bókasafni Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni safnastofnunar í samráði við framkvæmdasvið að kanna mögulegar úrbætur á innréttingum í bókasöfnunum.
-
8. Tónaflug 2021 samningur og fleira
Mál 2105107 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar samningur milli Menningarstofu og SÚN um framkvæmd Tónaflugs.