Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 37

3. maí 2021, kl. 17:00 til 19:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Magnea María Jónudóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður
  • Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð

    Mál 1904072 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að skýrslu Verkfræðistofunnar Eflu um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð sem vísað er frá bæjarráði til kynningar í þeim nefndum sveitarfélagsins er aðkomu hafa að málinu. Upplýsingafulltrúi kynnti helstu striði skýrslunnar.

  2. 2. Bókasafn Fáskrúðsfjarðar - opnunartími

    Mál 2103123 Allur ferill málsins

    Erindi forstöðumanns bókasafnsins á Fáskrúðsfirði og skólastjóra grunnskóla er varðar opnunartíma safnsins. Í bréfinu er lagt til að opnunartími safnsins á föstudögum frá 14:00 - 17:00 verði færður yfir á fimmtudaga á sama tíma. Menningar- og nýsköpunarnefnd tekur vel í erindið og felur forstöðumanni Safnastofnunar afgreiðslu málsins.

  3. 3. Sýningarvél í Egilsbúð

    Mál 2011091 Allur ferill málsins

    Lagðar fram nánari upplýsingar um fyrirhuguð not af rými í Egilsbúð. Forstöðumanni Safnastofnunar falið að afla nánari upplýsinga um kostnað við framkvæmdir og forvörslu kvikmyndavélarinnar sem staðsett er í rýminu. Tekið fyrir á næsta fundi.

  4. 4. Verkefni menningarstofu 2021

    Mál 2009060 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð forstöðumanns menningarstofu um verkefni síðustu mánaða og þau sem framundan eru í starfsemi menningarstofu.

  5. 5. Skapandi sumarstörf 2020

    Mál 2003022 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar lokaskýrsla um skapandi sumarstörf 2020. Forstöðumaður menningarstofu fór yfir nokkur atriði úr starfseminni síðasta sumar og helstu atriði skýrslunnar.

  6. 6. Tjaldsvæði Fjarðabyggðar sumarið 2021

    Mál 2103073 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir og viðhald við tjaldsvæði Fjarðabyggðar árið 2021 með vísan til fjárhagsáætlunar. Lagt fram kostnaðarmat tjaldsvæða og tillaga um framkvæmd og ráðstöfun fjármagns. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að taka saman stöðu viðhalds- og framkvæmdamála og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

  7. 7. Áfangastaðir Ferðamálastofa 2021

    Mál 2104121 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um áfangastaði í Fjarðabyggð 2021. Atvinnu- og þróunarstjóri fór yfir stöðu mála og efni minnisblaðsins. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir tillögur í minnisblaði.

  8. 8. Alcoa Foundation, umhverfisverkefni 2021

    Mál 2104047 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 23. apríl 2021, um styrkumsókn til umhverfisverkefnis í sjóð Alcoa Foundation. Minnisblaðið er lagt fram til kynningar að ósk eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Menningar- og nýsköpunarnefnd líst vel á framkomna hugmynd að umsókn í sjóðinn, að því gefnu að fjármagn til verkefnisins verði tryggt.

  9. 9. Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga

    Mál 2102089 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í nefndum sveitarfélagsins viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar.

  10. 10. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2021

    Mál 2103038 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 29.mars og 8.apríl lagðar fram til kynningar.