Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 322

18. nóvember 2021, kl. 16:00 til 16:35, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar
  • Sigurður Ólafsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025

    Mál 2104074 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:00:56

    Bæjarstjóri mælti fyrir breytingum á fjárhagsáætlun árin 2022 til 2025 milli umræðna og áætlun til síðari umræðu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögum að breytingum á fjárhagsáætlun milli umræðna ásamt endanlegri fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana árin 2022 til 2025 til síðari umræðu.

    Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2022 í milljónum kr.

    Rekstrarniðurstaða

    Samstæða A-hluta 113 m.kr.

    Samstæða B-hluta 590 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 703 m.kr.

    Fjárfestingar

    Samstæða A-hluta 341 m.kr.

    Samstæða B-hluta 600 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 941 m.kr.

    Afborganir langtímalána og leiguskuldbindinga

    Samstæða A-hluta 431 m.kr.

    Samstæða B-hluta 144 m.kr.

    Samstæða A og B hluta 575 m.kr

    Skuldir og skuldbindingar A hluta verði 9,8 milljarðar króna og samstæðunnar í heild 9,1 milljarðar króna í árslok 2022.

    Eigið fé er áætlað að nemi 1,3 milljörðum króna í A hluta og 7,8 milljörðum króna í samstæðu í árslok 2022.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Einar Már Sigurðsson,

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana árin 2022 til 2025.

    Tillaga.

    Forseti bæjarstjórnar bar upp sameiginlega tillögu vegna álagningar vatnsgjalds.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að hefja undirbúning að breytingu á álagningu vatnsgjalda í sveitarfélaginu þar sem horft verði til stærðar húsnæðis við álagningu í stað verðmætis. Nauðsynlegt er að undirbúa slíka breytingu vel og er fjármálastjóra og bæjarstjóra Fjarðabyggðar falið að taka saman og rýna hvaða áhrif slík breyting hefði á húseigendur í Fjarðabyggð eftir hverfum og leggja fyrir bæjarráð fyrri hluta árs 2022 í tengslum við vinnu vegna fjárhagsáætlunar 2023. Bæjarráð vinni svo með niðurstöður þeirrar samantektar með hliðsjón að ákvörðun liggi fyrir sumarið 2022 til grundvallar fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2023.

  2. 2. Bæjarráð - 733

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:14:56

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-20252104074
    2. 2.2 Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL2104079
    3. 2.3 Gjaldskrá leikskóla 20222109081
    4. 2.4 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20222109077
    5. 2.5 Málefni Einarsstofnunar og Einarsstofu við Heydalakirkju í Breiðdal.2111056
    6. 2.6 UÍA beiðni um styrk á árinu 20222111080
    7. 2.7 Samstarf við Leigufélagið Bríet um leiguhúsnæði21050970:15:24
    8. 2.8 Verksamningur um almenningssamgöngur Breiðdalsvík - Reyðarfjörður21110650:18:12
    9. 2.9 Umsókn um stofnframlag til bygginga á húsnæði2102091
    10. 2.10 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20212102016
    11. 2.11 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 3002111003F
    12. 2.12 Fræðslunefnd - 1042111006F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 300

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:20:04

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 8. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing21061480:20:04
    2. 3.2 Boð um þátttöku sveitarfélaga í námskeiðinu Loftslagsvernd í verki21110210:22:24
    3. 3.3 Innleiðing hringrásarhagkerfisins2012172
    4. 3.4 Samþykkt um hunda- og kattahald - endurskoðun 20212110088
    5. 3.5 735 Deiliskipulag Leira 1, breyting - sameining og stækkun lóða við Leirubakka og Leirukrók2111040
    6. 3.6 735 Leirubakki 4 og Leirukrókur 4 - Umsókn um sameiningu og stækkun lóða2111037
    7. 3.7 740 Nesgata 7 og 7A - Umsókn um byggingarleyfi, breytingar inni2109188
    8. 3.8 Uppsetning á útiæfingatækjum2107013
    9. 3.9 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20212102187
  4. 4. Fræðslunefnd - 104

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:24:16

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 10. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-20222110117
    2. 4.2 Sumarlokun leikskóla 20222110165
    3. 4.3 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
  5. 5. 735 Deiliskipulag Leira 1, breyting - sameining og stækkun lóða við Leirubakka og Leirukrók

    Mál 2111040 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:24:44

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á deiliskipulagi.

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leiru 1 vegna beiðni Eskju hf. um að deiliskipulaginu verði breytt þannig að heimil verði bygging þurrgeymslu með því að sameina Leirubakka 4 og Leirukrók 4 í eina lóð, Leirubakka 4. Lóðin er einnig stækkuð til suðurs og vegi hnikað til sem því nemur. Skilmálar fyrir Leirukrók 4 verða felldir út. Farið verði með breytinguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykki nágranna liggur fyrir.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi að Leiru 1.

  6. 6. Fjarvinnustefna Fjarðabyggðar

    Mál 2110035 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:26:08

    Bæjarstjóri mælti fyrir fjarvinnustefnu starfsmanna.

    Tekin til umfjöllunar fjarvinnustefnu fyrir starfsmenn sveitarfélagsins.

    Til máls tók Einar Már Sigurðarson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fjarvinnustefnu.