Málefni Einarsstofnunar og Einarsstofu við Heydalakirkju í Breiðdal.
Mál 2111056 Fyrst á dagskrá 15. nóvember 2021, síðast 18. nóvember 2021. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Breiðdalsvík og Breiðdalur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Bæjarráð, fundur 733 liður 5
Framlagt bréf frá fulltrúum sóknarnefndar Heydalakirkju þar sem farið er yfir málefni Einarsstofnunar og Einarsstofu í Breiðdal. Óskað er tilnefningar fulltrúa í stjórn Einarsstofu.
Bæjarráð fagnar framtaki um stofnun Einarsstofu til minningar um Einar Sigurðsson prest og sálmaskáld. Fjarðabyggð óskar eftir að fá að fylgjast með verkefninu en skipar ekki fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn.
-
Bæjarstjórn, fundur 322 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 733“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.