Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2021

735 Deiliskipulag Leira 1, breyting - sameining og stækkun lóða við Leirubakka og Leirukrók

Mál 2111040 Fyrst á dagskrá 8. nóvember 2021, síðast 18. nóvember 2021. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 18. nóvember 2021, frá 0:24:44

Í heiti málsins: LóðirSkipulag

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2021

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 300 liður 5

    Lögð fram beiðni Eskju hf, dagsett 5. nóvember 2021, um að deiliskipulagi Leiru 1 verði breytt þannig að heimil verði bygging þurrgeymslu með því að sameina Leirubakka 4 og Leirukrók 4 í eina lóð, Leirubakka 4. Lóðin er einnig stækkuð til suðurs og vegi hnikað til sem því nemur. Skilmálar fyrir Leirukrók 4 verða felldir út. Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Leiru 1.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi Leiru 1. Farið verði með breytinguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykki nágranna liggur fyrir. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  2. Bæjarráð, fundur 733 liður 11.5

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 300“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 322 liður 5

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á deiliskipulagi.

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leiru 1 vegna beiðni Eskju hf. um að deiliskipulaginu verði breytt þannig að heimil verði bygging þurrgeymslu með því að sameina Leirubakka 4 og Leirukrók 4 í eina lóð, Leirubakka 4. Lóðin er einnig stækkuð til suðurs og vegi hnikað til sem því nemur. Skilmálar fyrir Leirukrók 4 verða felldir út. Farið verði með breytinguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykki nágranna liggur fyrir.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi að Leiru 1.

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 322. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 0:24:44 umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að breytingu á deiliskipulagi leiru eitt vegna beiðni eskjuhf um að deiliskipulaginu verði breytt þannig að heimil verði bygging þurrgeymslu með því að sameina leirubakkafjögur og leirukrókfjögur í eina lóð leirubakka fjögur lóðin er einnig stækkuð til suðurs og vegi hnikað til sem því nemur
    • 0:25:12 sem því nemur skilmálar fyrir leirukrók fjögur verða felldir út farið verður með breytingu í samræmi við aðra málsgrein fertugustu og þriðju grein skipulagslaga númer hundrað tuttugu og þrjú tvö tvö stund og tíu og samþykki nágranna liggja fyrir og því er ekki farið greindarkenningu þar sem samþykki liggur fyrir þannig orðið er laust um þennan lið
    • 0:25:40 enginn hefur beðið um orðið og þá ber ég upp til samþykktarbreytingu á deiliskipulagi að leiru eitt og þeir sem það samþykkja athverskefmerki að samþykkt með nýju greiddum atkvæðum þá erum við komin í lið sex það er reglur um fjarvinu bæjarstjóri mun mæla fyrir þessum lið
  4. Bæjarstjórn, fundur 322 liður 3.5

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 300“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is