Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2021 til 2022
Mál 2201057 Fyrst á dagskrá 17. janúar 2022, síðast 3. febrúar 2022. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Bæjarráð, fundur 739 liður 6
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið hefur veitt sveitarfélögum frest til 21.janúar til að senda ráðuneytinu tillögur um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta til byggðarlaga fiskveiðiárið 2021/2022. Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra. Fram kom að Fjarðabyggð hefur verið veittur frestur til 4. febrúar til að skila inn tillögum til ráðuneytisins. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir fund bæjarráðs 31. janúar.
-
Bæjarstjórn, fundur 325 liður 3.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 739“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 741 liður 4
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið veitti sveitarfélögum frest til 21.janúar til að senda ráðuneytinu tillögur um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta til byggðarlaga fiskveiðiárið 2021/2022. Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra. Fjarðabyggð hefur verið veittur aukinn frestur til 4. febrúar, til að skila inn tillögum til ráðuneytisins. Bæjarstjóra og atvinnu- og þróunarstjóra falið að funda með samningsaðilum og ganga frá reglu til ráðuneytisins að því loknu.
-
Bæjarstjórn, fundur 326 liður 2.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 741“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.