Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 746

21. mars 2022, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 329 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 21. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2021

    Mál 2202017 Allur ferill málsins

    Kynnt drög að ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2021. Endurskoðendur Fjarðabyggðar sátu fundinn í fjarfundi og gerðu grein fyrir vinnu sinni. Ársreikningur verður tekin til umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs.

  2. 2. Reglur um launað námsleyfi starfsmanna leikskóla Fjarðabyggðar

    Mál 2203088 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að reglum ásamt minnisblaði um launuð námsleyfi fyrir starfsmenn leikskóla Fjarðabyggðar lagðar fram til samþykkis í samræmi við samþykkt bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar. Mannauðsstjóra falið að uppfæra reglur með vísan til umræðu á fundi.

  3. 3. Reglur um námsstyrki til starfsmanna og stofnana

    Mál 2109050 Allur ferill málsins

    Framlagðar til afgreiðslu drög að uppfærðum reglum um námstyrki fyrir starfsmenn og stofnanir Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. Dalborg, hönnun á viðbyggingu

    Mál 2002039 Allur ferill málsins

    Fram haldið umræðu um tilboða í viðbyggingu leikskólans Dalborgar en þrír aðilar gerðu tilboð í verkið í sjö tilboðum. Bæjarráð vísaði tilboðum til framkvæmdasviðs með beiðni um að tilboð yrðu yfirfarin og lögð fyrir bæjarráð að nýju. Lögð fram samantekt sviðsstjóra framkvæmdasviðs.

    Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Launafl á grundvelli tillagna sem koma fram í minnisblaði og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  5. 5. Umsókn um stofnframlag á árinu 2022

    Mál 2203070 Allur ferill málsins

    Lagðar fram yfirlýsingar um að Fjarðabyggð samþykki að veita stofnframlög vegna tveggja verkefna sem verði færð til Brákar hses sem byggja á umsókn Fjarðabyggðar um stofnframlög. Um er að ræða tvær íbúðir á Eskifirði og fjórar íbúðir í Neskaupstað sem almennar leiguíbúðir fyrir tekjulága. Heildarupphæð stofnframlaga Fjarðabyggðar er um 22,1 milljón króna. Ef af framkvæmdum verður munu stofnframlögin koma til greiðslu á þessu ári eða næstu tveimur árum.

    Bæjarráð samþykkir að veitt verði stofnframlög sbr. minnisblað um verkefni til byggingar sex íbúða. Fjármögnun vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins ef stofnframlagið verður samþykkt.

  6. 6. Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2022

    Mál 2203092 Allur ferill málsins

    Listasmiðja Norðfjarðar sækir um styrk til geiðslu faseignaskatts vegna Þiljuvalla 11 í Neskaupstað í samræmi við reglur Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.

    Bæjarráð samþykkir að veita styrk sbr. reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.

  7. 7. Aðalfundur Netorku hf 2022 - starfsárið 2021

    Mál 2203094 Allur ferill málsins

    Lagt fram aðalfundarboð í Netorku hf. en aðalfundurinn fer fram 29. mars nk.

    Fjármálastjóra falið að fara með umboð sveitarfélagsins á aðalfundinum.

  8. 8. Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf - 6.apríl 2022

    Mál 2203114 Allur ferill málsins

    Lagt fram aðalfundarboð Sparisjóðs Austurlands sem verður haldinn 6. apríl kl. 14:00 í Safnahúsinu í Neskaupstað.

    Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  9. 9. Hafnarstjórn - 275

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 15. mars lögð fram til afgreiðslu.

    1. 9.1 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    2. 9.2 Mál 59/2022 - Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/20032203083
    3. 9.3 Grænn orkugarður á Reyðarfirði2108124
    4. 9.4 Ósk Síldarvinnslunnar um löndunartengingu á Olíubryggju2203082
    5. 9.5 740 Leiruvegur - Umsókn um lóð við smábátahöfn2202136
    6. 9.6 740 Naustahvammur 76 - Umsókn um lóð2203022
    7. 9.7 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20222202086
    8. 9.8 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20212202184