Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 745

14. mars 2022, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 329 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Málefni slökkviliðs Fjarðabyggðar

    Mál 2106118 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni slökkviliðs.

  2. 2. Kvíabólsstígur framkvæmdir

    Mál 2010182 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs vegna framkvæmda við Kvíabólsstíg.

  3. 3. Framkvæmdir við Skólaveg

    Mál 2001149 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um samantekt á kostnaði við endurbætur á Skólavegi á Fáskrúðsfirði og nágrenni götunnar.

  4. 4. Umsókn um stofnframlag á árinu 2022

    Mál 2203070 Allur ferill málsins

    Umræða um umsókn um stoframlag frá ríkissjóði til byggingar íbúða í Fjarðabyggð f.h. Brákar hses. og jafnframt um veitingu stofnframlags frá Fjarðabyggð.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að undirbúa umsókn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  5. 5. Fyrirspurnir Ragnars Sigurðssonar

    Mál 2202113 Allur ferill málsins

    Framlögð viðbót við svari vegna fyrirspurnar Ragnars Sigurðssonar vegna greiddrar húsaleigu á árinu 2021 til þriðja aðila.

  6. 6. Viðgerð og endurbætur á Valhöll

    Mál 2203079 Allur ferill málsins

    Erindi frá Kvikmyndasýningarfélag Austurlands og Vinum Valhallar á Eskifirði varðandi viðhald á Valhöll Eskifirði í tengslum við fjáröflun vegna kaupa á sýningarkerfi.

    Bæjarráð vísar erindi til framkvæmdasviðs til úrvinnslu en á áætlun ársins er gert ráð fyrir viðhaldi á húsnæðinu. Jafnframt vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  7. 7. Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar

    Mál 2006128 Allur ferill málsins

    Lagður fram samningur við Bókaútgáfuna Hóla vegna ritunar á sögu Fáskrúðsfjarðar auk minnisblaðs um ritun sögu sveitarfélagsins.

    Bæjarráð samþykkir að saga Fáskrúðsfjarðar verði gefin út á árinu 2022 og felur bæjarstjóra að undirrita samning um útgáfu hennar. Bæjarstjóra og bæjarritara falið að skoða fjármögnun kostnaðar til að ljúka ritun sögunnar.

  8. 8. Upplýsingatækni - 50 skills

    Mál 2104069 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um innleiðing á 50skills ráðningarkerfi sem áformað er að leysi af H3 ráðningarkerfi.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirrita samning um innleiðingu á kerfinu.

  9. 9. 740 Kirkjubólseyrar 2 - Umsókn um lóð

    Mál 2202200 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn þar sem sótt er um lóð undir fjárhús við Kirkjubólseyri 2 í Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  10. 10. 735 Strandgata 98b - Umsókn um lóð

    Mál 2101035 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs ósk um lóð við hlið Strandgötu 98a undir Friðþjófshús, sem nú stendur á lóðinni við Strandgötu 88 á Eskifirði. Breyting á deiliskipulagi Hlíðarenda þar sem gert er ráð fyrir þjónustu- og íbúðarhúsalóð við Strandgötu 98b hefur verið samþykkt.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  11. 11. Erindi til sveitarfélaga vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu

    Mál 2203078 Allur ferill málsins

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið leitar til sveitarfélagana um þátttöku í móttöku flóttamanna en þátttakan getur verið sniðin að stærð og getu hvers sveitarfélags. Þess er óskað að áhugasöm sveitarfélög hafi samband við ráðuneytið.

    Bæjarráð tekur vel í erindið og fylgist vel með þróun mála til lausnar á vanda flóttamanna. Vísað til kynningar félagsmálanefndar og afgreiðslu og svara hjá fjölskyldusviði.

  12. 12. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, - Íbúakosningar á vegum sveitarfélaga

    Mál 2203050 Allur ferill málsins

    Innviðaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt drög að frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011. (Íbúakosningar á vegum sveitarfélaga) - Umsagnarfrestur er til 15.mars.

    Lagt fram til kynningar.

  13. 13. Nefndaskipan Fjarðalista 2018 - 2022

    Mál 1908104 Allur ferill málsins

    Birgir Jónsson hefur sagt sig frá nefndastörfum í íþrótta- og tómstundanefnd Fjarðabyggðar. Salome Rut Harðardóttir tekur sæti Birgis sem aðalmaður en hún hefur verið varamaður nefndarinnar. Þá tekur Arndís Bára Pétursdóttir sæti varamanns í nefndinni.

  14. 14. Samstarf Lions og Blindrafélagsins landssöfnun varðandi leiðsöguhunda

    Mál 2202201 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Lionshreyfingarinnar er varðar styrkbeiðni í tengslum við samstarf Lions og Blindrafélagsins í nafni Rauðu Fjaðrarinnar vegna leiðsöguhunda.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja Rauðu Fjöðrina um 50.000 kr. Tekið af liðnum óráðstafað.

  15. 15. Skýrsla um reynslu og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum á Íslandi

    Mál 2203066 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla um reynslu og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum á Íslandi sem unnin var af Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.

  16. 16. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2022

    Mál 2201187 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 11. febrúar lögð fram til kynningar.

  17. 17. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022

    Mál 2201106 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins frá 25. febrúar lögð fram til kynningar.

  18. 18. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 307

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. mars lögð fram til afgreiðslu.

    1. 18.1 Dalborg, hönnun á viðbyggingu2002039
    2. 18.2 740 Kirkjuból, vinnubúðir - Umsókn byggingarleyfi, niðurrif2203034
    3. 18.3 730 Búðargata 5 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2202176
    4. 18.4 735 Strandgata 61 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2202149
    5. 18.5 740 Naustahvammur 76 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2203021
    6. 18.6 750 Búðavegur 48 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2202169
    7. 18.7 735 Strandgata 98b - Umsókn um lóð2101035
    8. 18.8 740 Naustahvammur 76 - Umsókn um lóð2203022
    9. 18.9 740 Kirkjubólseyrar 2 - Umsókn um lóð2202200
    10. 18.10 740 Strandgata - Minningarreitur1806180
  19. 19. Fræðslunefnd - 108

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 9. mars lögð fram til afgreiðslu.

    1. 19.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-20222110117
    2. 19.2 Ókyngreindir búningsklefar og salerni í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar2202006
    3. 19.3 Skóladagatöl 2022-20232201063
    4. 19.4 Kennslutímamagn grunnskóla 2022-20232203002
    5. 19.5 Forvarnir gegn skólaforðun - Verklagsreglur2203046
  20. 20. Barnaverndarnefnd 2022

    Mál 2202112 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar frá 10. mars lögð fram til umfjöllunar.

  21. 21. Stjórnkerfisnefnd

    Mál 2011203 Allur ferill málsins

    Bæjarráð sem stjórnkerfisnefnd tók til umfjöllunar tillögur bæjarstjóra að breytingum á stjórnsýslu sveitarfélagsins.

    Bæjarráð samþykkir tillögur bæjarstjóra og felur honum úrvinnslu breytinganna og kynningu hennar meðal starfsmanna.