Fræðslunefnd, fundur 108
9. mars 2022, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 745 liður 19
Fundargerð fræðslunefndar frá 9. mars lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 329 liður 9
Fundargerðir fræðslunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar frá 9. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-2022
Mál 2110117 Allur ferill málsins
Skólastjóri leikskólans Lyngholts sagði frá helstu breytingum á skólanámskrá og starfsáætlun skólans og svaraði spurningum fundarmanna. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlun og þakkar skólastjóra fyrir góða kynningu og greinargóð svör.
Á næsta fundi nefndarinnar verður farið yfir skólanámskrár og starfsáætlun Eyrarvalla og Tónskóla Neskaupstaðar. Fræðslustjóri gerði grein fyrir stöðu mála í húsnæði Tónskóla Neskaupstaðar.
-
2. Ókyngreindir búningsklefar og salerni í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar
Mál 2202006 Allur ferill málsins
Bréf Jafnréttisteymis og íþróttakennara Verkmenntaskóla Austurlands er varðar íþróttamannvirki í Neskaupstað. Bæjarráð vísar bréfinu til félagsmálanefndar, eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar, til umfjöllunar og skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2023.Fræðslunefnd þakkar ábendinguna og fyrir að vekja athygli á málinu. Framkvæmdasvið hefur málið til skoðunar og fræðslunefnd fer nánar yfir málið.
-
3. Skóladagatöl 2022-2023
Mál 2201063 Allur ferill málsins
Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð fyrir skólaárið 2022 - 2023. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl.
-
4. Kennslutímamagn grunnskóla 2022-2023
Mál 2203002 Allur ferill málsins
Farið var yfir væntanlegan fjölda nemenda skólaárið 2022-2023 í grunnskólum Fjarðabyggðar og væntanlega úthlutun kennslutímamagns miðað við gildandi úthlutunarreglur. Frestað til næsta fundar.
-
5. Forvarnir gegn skólaforðun - Verklagsreglur
Mál 2203046 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri kynnti verklagsreglur um fjarvistir í grunnskólum, sem unnar hafa verið af skólastjórnendum í grunnskólunum og fulltrúum á fjölskydusviði. Til hliðsjónar voru reglur annarra skóla. Fræðslunefnd fagnar tilkomu verklagsreglanna og samþykkir þær með örlitlum breytingum.