Fræðslunefnd, fundur 109
23. mars 2022, kl. 16:30 til 19:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 747 liður 14
Fundargerð fræðslunefndar frá 23. mars lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 329 liður 10
Fundargerðir fræðslunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fræðslunefndar frá 23. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-2022
Mál 2110117 Allur ferill málsins
Skólastjórar leikskólans Eyrarvalla og Tónskóla Neskaupstaðar sögðu frá helstu breytingum á skólanámskrá og starfsáætlun skólanna og svöruðu spurningum fundarmanna.Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlanir og þakkar skólastjórum fyrir góða kynningu og greinargóð svör. Umræða fór fram um ástand húsnæðis Tónskóla Neskaupstaðar vegna myglu sem komin er upp að nýju og lýsti nefndin yfir miklum áhyggjum vegna ástandsins.
-
2. Kennslutímamagn grunnskóla 2022-2023
Mál 2203002 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað frá fræðslustjóra þar sem farið er yfir áætlaða úthlutun kennslutímamagns til grunnskóla skólaárið 2022-2023 og breytingar á áætlaðri úthlutun frá því við gerð fjárhagsáætlunar í október 2021. Einnig koma fram áætluð áhrif þeirra breytinga á fjárhagsáætlun 2022 í fræðslumálum. Farið var yfir væntanlegan fjölda nemenda skólaárið 2022-2023 í grunnskólum Fjarðabyggðar og væntanlega úthlutun kennslutímamagns miðað við gildandi úthlutunarreglur. Fræðslunefnd samþykkir fyrirhugaða úthlutun.
-
3. Flóttafólk frá Úkraínu
Mál 2203124 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað um flóttafólk frá Úkraníu. Í því kemur fram að þann 9. mars hafi borist erindi frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu um getu sveitarfélaga til að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Erindinu var vísað frá bæjarráði til fræðslu- og félagsmálanefndar og til úrlausnar á fjölskyldusviði þann 17. mars 2022.
Í svari fjölskyldusviðs um möguleika á þátttöku þess í móttöku flóttafólks frá Úkraínu segir m.a. Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar er, með þeim fyrirvörum sem fram eru komnir, reiðubúið til að sinna þeim hluta verkefnisins sem að því snýr. Fram kom að sviðsstjóri fjölskyldusviðs hefur fundað með skólastjórnendum leik- og grunnskóla. Fræðslunefnd tekur undir minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
-
4. Erindi til fræðslunefndar
Mál 2202166 Allur ferill málsins
Erindi hefur borist fræðslunefnd. Tekið fyrir sem trúnaðarmál og fært í trúnaðarbók.