Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 110

20. apríl 2022, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 751 liður 14

    Fundargerð fræðslunefndar frá 20. apríl sl. lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 331 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 20. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ungt fólk 2022

    Mál 2204045 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri kynnti niðurstöður úr könnuninni Ungt fólk 2022, 8.-10. bekkur, sem Rannsóknir og greining framkvæmdu í febrúar 2022. Unnið verður með niðurstöðurnar í hverjum skóla og stefnt að opnum fundi með foreldrum í maímánuði.

  2. 2. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri gerði grein fyrir framvindu aðgerðaráætlunar í fræðslu- og frístundamálum 2020-2022. Ánægjulegt er að sjá hversu vel hefur tekist að fylgja aðgerðaaráætlun. Fræðslunefnd telur rétt að gera aðgerðaráætlun til næstu þriggja ára 2023-2025, sem ný fræðslunefnd komi til með að móta með starfsmönnum sveitarfélagsins og íbúum Fjarðabyggðar.

  3. 3. Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 2201064 Allur ferill málsins

    Farið var yfir matseðil sem liggur til grundvallar útboðsgögnum, en hann byggir á matseðli í skólum á Akureyri. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi matseðla.

  4. 4. Svæðisskipulagsnefnd 2021

    Mál 2102084 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísaði til kynningar í fræðslunefnd svæðisskipulagi Austurlands. Lagt fram til kynningar.

  5. 5. Skóladagatöl 2022-2023

    Mál 2201063 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur skóladagatal Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatal.