Fræðslunefnd, fundur 111
11. maí 2022, kl. 16:30 til 17:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 753 liður 19
Fundargerð fræðslunefndar frá 11. maí lögð fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn, fundur 332 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 11. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Skýrsla Velferðarvaktarinnar - Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum
Mál 2205056 Allur ferill málsins
Lögð fram rannsóknarskýrsla Velferðarvaktarinnar. Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum, sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið komu að og Velferðarvaktin gaf út í janúar sl. Lagt fram til kynningar.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2023
Mál 2205097 Allur ferill málsins
Farið var yfir helstu breytingar er snúa að starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum fyrir árið 2023. Fræðslustjóri greindi frá þeirri vinnu sem farin er af stað. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að vinna málið áfram.
-
3. Ábending til fræðslunefndar
Mál 2205109 Allur ferill málsins
Ábending hefur borist til fræðslunefndar - Tekið fyrir sem trúnaðarmál og fært í trúnaðarbók.