Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 753

23. maí 2022, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 332 liður 1

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð bæjarráðs frá 23. maí utan liðar 6 í fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2204062 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - mars auk skatttekna og launakostnaðar janúar - apríl.

  2. 2. Breyting á reglugerð nr. 1212 frá 2015 um reikningsskil sveitarfélaga

    Mál 2110070 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf reikningsskila- og upplýsinganefndar vegna breytinga á reglugerð nr. 1212/2015 um reikningsskil byggðasamlaga sem sveitarfélög eru með beina ábyrgð á.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra umhald málsins og leggja fram viðauka til nýrrar bæjarstjórnar.

  3. 3. Fræðsla kjörinna fulltrúa - sveitarfélagaskólinn

    Mál 2205098 Allur ferill málsins

    Framlagðar upplýsingar um sveitarfélagaskólann sem býður í samstarfi við Háskólann í Reykjavík upp á sérsniðin námskeið fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum og nefndum. Námskeiðin eru á rafrænu formi.

    Bæjarráð samþykkir þátttöku í sveitarfélagaskólanum fyrir kjörna fulltrúa í bæjarstjórn og nefndum.

  4. 4. Umsókn að styrk fyrir ærslabelg í Mjóafirði

    Mál 2205212 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Jóhönnu Lárusdóttur og Margrétar Sigfúsdóttur þar sem óskað er eftir að ærslabelgur verði settur upp í Mjóafirði.

    Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni en lýsir áhuga á að koma að málinu verði á því framhald.

  5. 5. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2022

    Mál 2205211 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Verkmenntaskóla Austurlands um gjaldfrjáls afnot af íþróttahúsinu í Neskaupstað fyrir Tæknidag fjölskyldunnar sem haldinn verður í áttunda sinn laugardaginn 1.október nk.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja tæknidaginn sem nemur afnotum af íþróttahúsinu með sama hætti og undanfarin ár.

  6. 6. Forkaupsréttur að Naustahvammi 20 í Neskaupstað

    Mál 2205239 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Fram lagður tölvupóstur frá Lf-fasteignasölu þar óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að fasteigninni að Naustahvammi 20 á Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti á fasteigninni vegna þessarar sölu.

  7. 7. Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög

    Mál 2103044 Allur ferill málsins

    Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög.

    Í lögunum um stjórnsýslu jafnréttismála er í 13. gr. fjallað um skyldur sveitarfélaga.Um er að ræða töluverðar breytingar frá lögum nr. 10/2008. Áætlanir sveitarfélaga í jafnréttismálum skulu nú taka til markmiða og aðgerða til að koma í veg fyrir mismunun, ekki eingöngu vegna kyns sbr. lög nr. 150/2020, heldur einnig sbr. lög um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna nr. 85/2018 og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun,skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu nr.86/2018. Þá hefur einnig verið gerð sú breyting að ekki er lengur kveðið á um skipunsérstakra jafnréttisnefnda heldur skal sveitarstjórn fela byggðaráði eða annarri fastanefnd sveitarfélagsins að fara með jafnréttismál.

    Bæjarráð samþykkir að vísa endurskoðun jafnréttisstefnu til nýrrar félagsmálanefndar.

  8. 8. Ábending til fræðslunefndar

    Mál 2205109 Allur ferill málsins

    Málið lagt fram sem trúnaðarmál

  9. 9. 730 Stekkjartún 4 - umsókn um lóð

    Mál 2205152 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn HRMS Byggingar ehf. um lóðina við Stekkjartún 4, á Reyðarfirði undir einbýlishús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  10. 10. 730 Stekkjartún 6 - umsókn um lóð

    Mál 2205153 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn HRMS Byggingar ehf. um lóðina við Stekkjartún 6 á Reyðarfirði undir einbýlishús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  11. 11. 730 Hjallaleira 2 - Umsókn um lóð

    Mál 2205060 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Straumbrots ehf. um lóðina við Hjallaleiru 2 á Reyðarfirði undir atvinnuhúsnæði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  12. 12. 740 Naustahvammur 58 - Umsókn um lóð

    Mál 2205117 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Nestaks ehf.um lóðina við Naustahvamm 58 undir atvinnuhúsnæði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  13. 13. 735 Miðdalur 16 - umsókn um lóð

    Mál 2205061 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn um Miðdal 16 á Eskifirði undir einbýlishús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  14. 14. 760 Sólheimar 7 - Umsókn um lóð

    Mál 2205083 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Búðinga ehf. um lóðina við Sólheima 7 á Breiðdalsvík undir parhús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  15. 15. Frumvarp til laga um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036, 563. mál.

    Mál 2205221 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036, 563. mál. Umsögn berist eigi síðar en 1. júní. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/152/s/0799.html

  16. 16. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 28.-30. september 2022 haldið á Akureyri

    Mál 2205096 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Samband íslenskra sveitarfélaga um skipan fulltrúa til að sitja landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kosnir verða fjórir landsþingsfulltrúar og jafn margir til vara, til næstu fjögurra ára.

    Vísað til kosningu fulltrúa í nefndir og ráð sveitarfélagsins sbr. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

  17. 17. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022

    Mál 2201106 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins frá 27. apríl sl. lögð fram til kynningar.

  18. 18. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 312

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 12. maí lögð fram til staðfestingar.

    1. 18.1 730 Stekkjartún 4 - umsókn um lóð2205152
    2. 18.2 730 Stekkjartún 6 - umsókn um lóð2205153
    3. 18.3 730 Hjallaleira 2 - Umsókn um lóð2205060
    4. 18.4 735 Miðdalur 16 - umsókn um lóð2205061
    5. 18.5 740 Naustahvammur 58 - umsókn um lóð2205067
    6. 18.6 740 Naustahvammur 58 - Umsókn um lóð2205117
    7. 18.7 740 Sæbakki 19 og 21 - Umsókn um lóð2205084
    8. 18.8 760 Sólheimar 7 - Umsókn um lóð2205083
    9. 18.9 730 Mánagata 18 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2204142
    10. 18.10 735 Svínaskálahlíð 5 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2204159
    11. 18.11 735 Strandgata 78 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2204091
    12. 18.12 760 Sólbakki 6 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2205021
    13. 18.13 Veggmyndir á brúm á Fáskrúðsfirði2205123
    14. 18.14 Ósk Leiknis Fáskrúðsfirði um viðgerð knattspyrnuvallar2205078
  19. 19. Fræðslunefnd - 111

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 11. maí lögð fram til staðfestingar.

    1. 19.1 Skýrsla Velferðarvaktarinnar - Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum2205056
    2. 19.2 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20232205097
    3. 19.3 Ábending til fræðslunefndar2205109
  20. 20. Íþrótta- og tómstundanefnd - 99

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 9. maí lögð fram til staðfestingar.

    1. 20.1 Efling á félagsstarfi fullorðinna á árinu 2022 í kjölfar Covid-19
    2. 20.2 Sumarfrístund 2022
    3. 20.3 Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna 530. maíl
    4. 20.4 Styrkir til íþrótta- og tómstundamála 2022
    5. 20.5 Ósk Leiknis Fáskrúðsfirði um viðgerð knattspyrnuvallar
  21. 21. Félagsmálanefnd - 153

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. maí lögð fram til staðfestingar.

    1. 21.1 Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna 530. mál2205032
    2. 21.2 Umsögn um frumvarp til laga um sorgarleyfi 593. mál2205033
    3. 21.3 Flóttafólk frá Úkraínu2203124
    4. 21.4 Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.2202015
    5. 21.5 Ungt fólk 20222204045
    6. 21.6 Svæðisskipulagsnefnd 20212102084
    7. 21.7 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20222104133
    8. 21.8 Öldungaráð - 62203001F
    9. 21.9 Öldungaráð - 72205005F
  22. 22. Öldungaráð - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 7. apríl lögð fram til staðfestingar.

    1. 22.1 Hafnargjöld fyrir eldri borgara2006145
    2. 22.2 Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara2112083
    3. 22.3 Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.2202015
    4. 22.4 Öldungaráð - Önnur mál2204016
    5. 22.5 Sameiginleg mál félaga eldriborgara í Fjarðabyggð2204017
  23. 23. Öldungaráð - 7

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 5. maí lögð fram til staðfestingar.

    1. 23.1 Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara2112083
    2. 23.2 Efling á félagsstarfi fullorðinna á árinu 2022 í kjölfar Covid-192205030
    3. 23.3 Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.2202015
  24. 24. Barnaverndarnefnd 2022

    Mál 2202112 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar frá 12. maí lögð fram til staðfestingar.