Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 153

10. maí 2022, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Óskar Sturluson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 753 liður 21

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. maí lögð fram til staðfestingar.

  • Bæjarstjórn, fundur 332 liður 6

    Til máls tók Hjördís Helga S. Þóroddsdóttir.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 11. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna 530. mál

    Mál 2205032 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir frumvarp til laga um breytinga á ýmsum lögum í þágu barna 530. mál. Félagsmálanefnd telur ekki ástæðu til að senda umsögn um frumvarpið.

    Frumvarpið og greinargerð með frumvarpinu má nálagst hér https://www.althingi.is/altext/pdf/152/s/0758.pdf

  2. 2. Umsögn um frumvarp til laga um sorgarleyfi 593. mál

    Mál 2205033 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir frumvarp til laga um sorgarleyfi 593. mál. Félagsmálanefnd telur ekki ástæðu til að senda umsögn um frumvarpið.

    Frumvarpið og greinargerð með frumvarpinu má nálagst hér https://www.althingi.is/altext/pdf/152/s/0835.pdf

  3. 3. Flóttafólk frá Úkraínu

    Mál 2203124 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir bréf mennta- barnamálaráðherra, dags 6. maí 2022, um stuðning ráðuneytisins við sveitarfélög vegna móttöku barna á flótta frá Úkraínu.

  4. 4. Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.

    Mál 2202015 Allur ferill málsins

    Framhald umræðu frá síðasta fundi nefndarinnar. Félagsmálanefnd felur stjórnanda félagsþjónustu og barnaverndar að kynna hugmyndirnar fyrir eldriborgurum hvers byggðarkjarna fyrir sig. Lagt er upp með að starfsmenn fjölskyldusviðs fari á fundi með eldriborgurum vegna þessa.

  5. 5. Ungt fólk 2022

    Mál 2204045 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir niðurstöður úr könnuninni Ungt fólk 2022, 8.-10. bekkur, sem Rannsóknir og greining framkvæmdi í Fjarðabyggð, febrúar 2022. Lagt er til að niðurstaðan verði einnig kynnt fyrir nýjum nefndum sveitarfélagsins, að afstöðnum kosningum í maí 2022, eftir því sem við á.

  6. 6. Svæðisskipulagsnefnd 2021

    Mál 2102084 Allur ferill málsins

    Kynnt er svæðisskipulag Austurlands 2022-2044.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022

    Mál 2104133 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar fer yfir rekstur félagsmálanefndar fyrstu þrjá mánuði ársins 2022.

  8. 8. Öldungaráð - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs nr. 6 er kynnt félagsmálanefnd.

    1. 8.1 Hafnargjöld fyrir eldri borgara2006145
    2. 8.2 Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara2112083
    3. 8.3 Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.2202015
    4. 8.4 Öldungaráð - Önnur mál2204016
    5. 8.5 Sameiginleg mál félaga eldriborgara í Fjarðabyggð2204017
  9. 9. Öldungaráð - 7

    Fundargerðin í heild

    Kynnt er fundargerð öldungaráðs nr. 7.

    1. 9.1 Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara2112083
    2. 9.2 Efling á félagsstarfi fullorðinna á árinu 2022 í kjölfar Covid-192205030
    3. 9.3 Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.2202015