Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirÖldungaráð

Öldungaráð, fundur 6

7. apríl 2022, kl. 14:30 til 15:40, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Guðrún Lilja Magnúsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Jórunn Bjarnadóttir, aðalmaður
  • Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Þórarinn Viðfjörð Guðnason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðrún Lilja Magnúsdóttir, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Hafnargjöld fyrir eldri borgara

    Mál 2006145 Allur ferill málsins

    Kynnt afgreiðsla hafnarstjórnar á erindi um niðurfellingu hafnargjalda fyrir eldri borgara. Hafnarstjórn telur ekki að hennar verksviði að hlutast til um málið.

    Öldungaráð felur forstöðumanni stoðþjónustu að svara erindi.

  2. 2. Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara

    Mál 2112083 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu viðhalds húsnæðis í útleigu hjá félögum eldri borgara í Fjarðabyggð.

    Öldungaráð vísar málinu til fasteigna- og framkvæmdafulltrúa til nánari skoðunar. Frestað til næsta fundar

  3. 3. Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.

    Mál 2202015 Allur ferill málsins

    Erindi vísað frá félagsmálanefnd til umfjöllunar í öldungaráði. Þennan lið fundarins sat Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og fór yfir stefnumótun í málefnum eldri borgara.

    Öldungaráð felur forsvarsmönnum félaga eldri borgara að fá nánari upplýsingar frá félögunum til að setja í vinnu við stefnumótun. Minnisblað sent á alla formenn eldriborgara félaganna til kynningar hjá félögunum. Málið verður rætt frekar á næsta fundi.

  4. 4. Öldungaráð - Önnur mál

    Mál 2204016 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður kynnti námskeiðið Fjármál við starfslok.

  5. 5. Sameiginleg mál félaga eldriborgara í Fjarðabyggð

    Mál 2204017 Allur ferill málsins

    Umræða um sameiginleg mál eldri borgara í Fjarðabyggð.

    Umræða um hvernig hefur gengið að ná inn nýjum félögum inn í félög eldriborga í Fjarðabyggð. Rætt um að hittast til þess að ræða sameiginlega samstarfsfleti og samstarf á milli félaga.