Öldungaráð, fundur 7
5. maí 2022, kl. 13:30 til 14:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Guðrún Lilja Magnúsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Jórunn Bjarnadóttir, aðalmaður
- Þórarinn Viðfjörð Guðnason, aðalmaður
Starfsmenn
- Guðrún Lilja Magnúsdóttir, embættismaður
- Óskar Sturluson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Félagsmálanefnd, fundur 153 liður 9
Kynnt er fundargerð öldungaráðs nr. 7.
Bæjarráð, fundur 753 liður 23
Fundargerð öldungaráðs frá 5. maí lögð fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn, fundur 332 liður 8
Enginn tók til máls.
Fundargerð öldungaráðs frá 5. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara
Mál 2112083 Allur ferill málsins
Jón Grétar Margeirsson, umsjónarmaður fasteigna, mætir á fundinn og fer yfir stöðu viðhalds húsnæðis félaga eldri borgara í Fjarðabyggð.
-
2. Efling á félagsstarfi fullorðinna á árinu 2022 í kjölfar Covid-19
Mál 2205030 Allur ferill málsins
Kynnt er tölvubréf frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, þar sem fjallað er um styrk til félgasstarfs eldriborgara vegna Covid 19. Rætt er að halda mögulega einn einstakan viðburð fyrir eldriborgara sveitarfélagsins, þar sem hægt væri að hafa sameiginlegt fyrir alla byggðakjarna. Rætt m.a. um þá þjónustu sem er í boði í Fjarðabyggð. Öldungaráð leggur fyrir forstöðumann stoðþjónustu að vinna áfram með hugmyndina og sækja um styrk vegna hennar.
-
3. Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.
Mál 2202015 Allur ferill málsins
Framhald af umræðu síðasta fundar um málið. Rætt um að virkja þurfi þjónustuhópinn í stefnumótuninni. Lagt til að starfsfólk fjölskyldusviðs mæti á fundi eldriborgarafélaganna til að kynna málið og vinna í samráði.